Fara í efni

Atvinnumálanefnd

23. fundur
28. desember 2016 kl. 12:00 - 14:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage varaformaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Sigríður Lárusdóttir 2. varamaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Jólahátíð í Hornafirði
Málsnúmer 201511028
Jólahátíð í Hornafirði var haldin hátíðlega í Nýheimum í upphafi aðventu. Viðburðurinn var vel sóttur og almenn ánægja ríkti með daginn.
Miklar umræður sköpuðust um Jólahátíðina og er almenn ánægja með daginn þótt skiptar skoðanir séu um framkvæmd viðburðarins. Ljóst er að mikill vilji er til þess að allir þrír þættir hennar verði áfram í boði, þ.e. jóla-/aðventuhátíð fjölskyldunnar í Nýheimum, jólamarkaður og athöfn þegar kveikt er á jólatrénu. Leggur atvinnumálanefnd áherslu á að til þess að hægt sé að bjóða upp á viðburð utandyra þá þurfi að vera til færanlegt svið í sveitarfélaginu.
2.
Samstarf í ferðamálum á Suðurlandi
Málsnúmer 201602049
Unnið er að gerð samræmdra ferðamannakorta/bæklinga fyrir Suðurland. Starfsmaður kynnir áherslur við gerð kynningarefnis fyrir austasta svæði Suðurlands - Sveitarfélagið Hornafjörð.
Atvinnumálanefnd tekur undir þær áherslur sem lagðar er á varðandi kynningarefni svæðisins.
3.
Salernismál - Skýrslur EFLU fyrir Stjórnstöð ferðamála
Málsnúmer 201611090
Lagðar eru fram þrjár áfangaskýrslur, auk stjórnendasamantektar, sem saman mynda góða heild og gætu nýst við frekari skipulags- og áætlanagerð, s.s. vegna landsáætlunar um uppbyggingu innviða ferðaþjónustunnar. 1. Ástandsgreining: Nýtist vel við að meta ástand og við forgangsröðun.2. Uppbygging: Nýtist vel við að áætla salernisþörf og kostnað við uppbyggingu.3. Rekstur: Nýtist vel við að áætla kostnað við rekstur. Hér liggja fyrir ítarleg gögn sem gott er að rýna og bera saman við þau gögn sem liggja nú þegar fyrir á svæðinu.
Atvinnumálanefnd bendir á mikilvægi þess að það verði fleiri svæði skilgreind sem ferðamannastaðir í Austur-Skaftafellssýslu, og að í raun sé þjóðvegur 1 innan sýslunnar í heild sinni einn stór ferðamannastaður. Kallar það á aukna uppbyggingu innviða og þjónustu við veginn, þar á meðal viðunandi salernisaðstöðu. Bendir atvinnumálanefnd í þeim efnum á skýrsluna "Áningarstaðir og örugg vegútskot á Suðausturlandi með áherslu á náttúrufar og myndrænt svipmót" sem unnin var af Náttúrustofu Suðausturlands í samvinnu við Vegagerðina ofl. Er starfsmanni falið að koma þessum ábendingum á framfæri við viðeigandi aðila.
4.
Skýrsla um starfastefnumót
Málsnúmer 201612047
Drög vegna lokaskýrslu Starfastefnumóts liggur fyrir og er hún lögð fram til kynningar og umræðu.
Mikil almenn ánægja er með framkvæmd Starfastefnumótsins og tekur atvinnumálanefnd undir þau sjónarmið þátttakenda að bjóða upp á viðburðinn á 2-3 ára fresti í Sveitarfélaginu Hornafirði.