Fara í efni

Atvinnumálanefnd

29. fundur
24. maí 2017 kl. 14:00 - 15:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Þjóðlendur í sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201705041
Bæjarráð Hornafjarðar fjallaði um málið á 812. fundi sínum þann 8. maí sl. og vísaði erindinu yfir til atvinnumálanefndar.
Atvinnumálanefnd tekur undir þá bókun bæjarráðs að mikilvægt sé að ræða við alla hlutaðeigandi. Einnig leggur atvinnumálanefnd áherslu á að gætt sé hagsmunum allra samningsaðila þar sem sveitarfélagið hefur gert samninga við þriðja aðila sbr. að Fjallsárlóni.
2.
Tillögur stjórnar Búnaðarsambands A-Skaft um vinnuhætti vegna refa- og minkaveiða og fjallskil í SVH
Málsnúmer 201705018
Erindi frá Búnaðarsambandi Austur-Skaftafellssýslu um vinnuhætti við fjallskilasamþykkt í A-Skaft lagt fram til kynningar.
Vinna við nýja fjallskilasamþykkt er nú þegar hafin innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar og líst atvinnumálanefnd mjög vel á að aðkoma bænda verði eins og lagt er til í tillögu samtakanna.
3.
Fjallsárlón - framkvæmdaáætlun vegna verkefna SVH í þjóðlendunni
Málsnúmer 201704069
Atvinnumálanefnd tekur undir bókun frá 28. fundi skipulagsnefndar og leggur áherslu á mikilvægi þess að gönguleið frá þjónustuhúsi verði lagfærð sem fyrst.
4.
Endurskoðun á ferðaþjónustukafla Aðalskipulags Hornafjarðar 2012-2030
Málsnúmer 201612007
Drög að ferðaþjónustukafla í aðalskipulag lögð fram til umræðu og kynningar.
Atvinnumálanefnd fagnar vinnu við endurskoðun á ferðaþjónustukafla aðalskipulags og lýsir yfir ánægju með þá greiningarvinnu sem hefur átt sér stað. Umræður sköpuðust um skilgreiningu á landbúnaðarsvæðum og mikilvægi þess að byggð í dreifbýli haldist blönduð.
5.
Stefnumótandi stjórnunaráætlun fyrir ferðaþjónustu í hverjum landshluta/Destination management plan (DMP)
Málsnúmer 201609018
Staðan á DMP verkefni kynnt og næstu skref sem eru að mynda vinnuhópa svæðis. DMP vinnuhópur er sá hópur fólks sem kemur að og drífur áfram viðkomandi DMP áætlun. Æskilegt er aðí vinnuhópnum sitji breiður hópur hagaðili, bæði opinberra og einkaaðila. Hópinn skipar markaðsstofa viðkomandi svæðis í samvinnu við tengilið.
Atvinnumálanefnd hvetur áhugasama til að kynna sér þá vinnu sem er framundan varðandi stefnumótandi stjórnunaráætlanir fyrir ferðaþjónustu landshlutanna, sem og að gefa færi á sér í vinnuhópa fyrir svæðið.
6.
Cruise Iceland 2017
Málsnúmer 201702016
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi kynnir helstu verkefni sem hefur unnið í tengslum við skemmtiferðaskip í Hornafirði undanfarið.

Í sumar eru bókaðar 11 skipakomur í Hornafjarðarhöfn. Eru um tvö skip að ræða, Spitsbergen sem er bókað í þrjú skipti, og Orion sem er bókað í átta skipti.

Atvinnumálanefnd telur komu skemmtiferðaskipa til Hafnar jákvæða og glæða bæinn lífi. Auk þess er stærð þeirra skipa sem hingað koma góð fyrir þá innviði sem svæðið hefur upp á að bjóða. Er skoðun nefndarinnar sú að svæðinu sé betur borgið innan Cruise Iceland samstarfsins en utan þess.