Atvinnumálanefnd
30. fundur
23. ágúst 2017
kl.
17:00
-
19:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage
varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Hlíf Gylfadóttir
aðalmaður
Adisa Mesetovic
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Lausnir fyrir sveitarfélög - rafræn gönguleiðsögn
Einar Skúlason sem rekur Wapp-Walking app kemur á fundinn og kynnir þær lausnir sem fyrirtækið býður upp á fyrir sveitarfélög og aðra sem bjóða upp á gönguleiðir. Atvinnumálanefnd bókaði á 28. fundi sínum að Sveitarfélagið skyldi kanna samstarf við Vatnajökulsþjóðgarð varðandi slíkar lausnir. Situr Helga Árnadóttir, aðstoðarþjóðgarðsvörður í Vatnajökulsþjóðgarði því fundinn undir þessum lið.
Wapp-Walking app er snjallforrit sem býður upp á heildarlausnir varðandi gönguleiðir. Það kemur gönguleiðum á framfæri, eykur upplifun göngufólks sem og öryggi þeirra. Atvinnumálanefnd er áhugasöm um þá möguleika sem snjallforritið býður upp á og sér möguleika í því að koma þeim fjölmörgu gönguleiðum sem eru á svæðinu á framfæri með því. Gæti það verið í samstarfi við aðrar stofnanir og fyrirtæki á svæðinu.
2.
Húsnæði Sláturfélagsins Búa - Vestur hluti sláturhúss
Bæjarráði Hornafjarðar barst erindi frá Sláturfélaginu Búa þann 3. júlí sl. þar sem Sveitarfélaginu Hornafirði var boðið að taka hluta af húsnæði félagsins til leigu. Um er að ræða rými í vesturenda sláturhússins á Höfn, á aðalhæð um það bil 130 til 150 fermetra og á efri hæð um 50 til 60 fermetrar. Erindið var tekið fyrir á 820. fundi bæjarráðs og var atvinnu- og menningarmálanefnd falið að kanna nýtingarmöguleika hússins.
Hluti af atvinnumálanefnd og starfsmaður nefndarinnar fóru í vettvangsferð til að skoða þann hluta sláturhússins sem um ræðir. Neðri hæð hússins nýtist vel til matvælavinnslu og hefur húsnæðið starfsleyfi til slíks.
3.
Markaðs- og kynningarmál á vegum sveitarfélagsins
Ákveðið að vinna að markaðs- og kynningaráætlun fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð. Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
4.
Stefnumótandi stjórnunaráætlun fyrir ferðaþjónustu í hverjum landshluta/Destination management plan (DMP)
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi kynnir stöðu verkefnisins, en búið er að setja saman vinnuhóp til að móta áfangastaðaáætlun (DMP) fyrir austursvæði Suðurlands. Fjölbreyttur hópur kemur að vinnunni og samanstendur hann m.a. af fulltrúa landeigenda, íbúa og mismunandi ferðaþjónustufyrirtækja.
Atvinnumálanefnd fagnar góðum gangi í verkefninu.
5.
Styrkir Sveitarfélagsins vegna Jöklaleiðar.
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi fer yfir stöðuna vegna styrkja Sveitarfélagsins Hornafjarðar hjá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Styrkirnir eru vegna Jöklaleiðarinnar.
Öll verkefni sveitarfélagsins sem hafa verið styrkt af Framkvæmdasjóði ferðamannastaða eru að klárast í haust. Ákveðið að starfsmaður leggi fram tillögur að verkefnum fyrir næstu úthlutun.
6.
Afgreiðsla úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Umsókn 1510123-Brú yfir Kolgrafardalsá og brú "á milli fella"
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi upplýsir um stöðu verkefnisins.
Verkefninu er að ljúka og verður gönguleiðin "Mýrajöklar" opnuð formlega fimmtudaginn 31. ágúst. Verður á ný göngubrú yfir Kolgrafardalsá einnig vígð. Brúin opnar gönguleið frá Haukafelli að Fláajökli.