Fara í efni

Atvinnumálanefnd

31. fundur
28. ágúst 2017 kl. 16:15 - 18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Hlíf Gylfadóttir aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Adisa Mesetovic Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Ástandsmat á gróðurlendi í Endalausadal í Lóni
Málsnúmer 201705055
Aðilar frá Náttúrustofu Suðausturlands kynna skýrslu um rannsókn sem gerð var um gróðurfar í Endalausadal árið 2015.
Formaður setur fund og býður fundarmenn velkomna.
Kristín og Jóhann Helgi boðin velkomin á fundinn.

Kristín kynnir skýrslu sem unnin var af Náttúrustofu Suðausturlands á gróðurfari í Endalausadal. Í skýrslunni er lagt til að svipuð athugun sé gerð á öllum beitarlöndum í Sveitarfélaginu Hornafirði og væri þá kominn góður grunnur í átt að sjálfbærni. Tillögur til úrbóta voru m.a. að stytta beitartíma og efla samstarf við Landgræðsluna, t.d. með þátttöku í verkefninu "Bændur græða landið". Umræður sköpuðust um beitarmál og kom fram að hér í sýslunni væri beit af þremur mismunandi dýrategundum. Það er af fuglum, hreindýrum og sauðfé.

Kristínu og Jóhanni Helga var þakkað kærlega fyrir komuna.
2.
Fjallskilasamþykkt
Málsnúmer 201608035
Unnið er að nýrri fjallskilasamþykkt fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð í samstarfi við Búnaðarsamband Austur-Skaftafellssýslu. Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
3.
Fjallskilabréf í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201708004
Sveitarfélagið sendi fjallskilabréf á sauðfjárbændur og landeigendur í Austur-Skaftafellssýslu. Þar koma fram útgefnir dagar fyrir 1., 2. og 3ju göngur, eru 30. september, 10. október og 20. október 2017. Í bréfinu kemur einnig fram hver er fjallskilastjóri í hverjum hrepp.