Atvinnumálanefnd
32. fundur
3. október 2017
kl.
17:00
-
19:12
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Hlíf Gylfadóttir
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Wiktoria Anna Darnowska
Fulltrúi ungmennaráðs
Bergþóra Ólafía Ágústsdóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Endurskoðun á ferðaþjónustukafla Aðalskipulags Hornafjarðar 2012-2030
Unnið hefur verið að endurskoðun á ferðaþjónustukafla Aðalskipulags Hornafjarðar 2012-2030 og hafa drög verið lögð fram hjá skipulagsnefnd. Málinu var vísað til umræðu í atvinnumálanefnd.
Atvinnumálanefnd fagnar þeirri vinnu sem nú er varðandi endurskoðun á ferðamálakafla í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Hún tekur undir þá stefnu að fjölga áfangastöðum ferðamanna til að dreifa álagi, en leggur jafnframt áherslu á að styrkja þá innviði sem til staðar eru á fjölförnum ferðamannastöðum. Atvinnumálanefnd bendir á að nú er yfirstandandi gerð áfangastaðaáætlunar (DMP) fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð og mælir með að greining og stefna sem þar kemur fram verði nýtt í endurskoðun ferðamálakaflans.
2.
Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi.
Sveitarfélagið sótti um aðild að samstarfsverkefni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar í sumar. Verkefnið snýr að því að þróa og hanna sjálfbæra aðlaðandi bæi og minni borgir á Norðurlöndum. Var Sveitarfélagið Hornafjörður samþykkt inn í verkefnið og fór atvinnu- og ferðamálafulltrúi ásamt forstöðumanni Nýheima Þekkingarseturs á fyrstu vinnustofu þess í september.
Starfsmaður kynnir verkefnið.
3.
Lausnir fyrir sveitarfélög - rafræn gönguleiðsögn
Tillaga að samstarfi á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Wapps - Walking app hefur borist frá Einari Skúlasyni framkvæmdastjóra göngu appsins.
Atvinnumálanefnd líst vel á samstarf við Wapp-ið og leggur til að starfsmaður gangi til samninga.
4.
Náttúruhamfarir í Sveitarfélaginu Hornafirði september 2017
Mikil úrkoma á Suðausturlandi síðustu vikuna í september olli hamfaraflóði í Sveitarfélaginu Hornafirði. Mestir vatnavextir voru í Hólmsá á Mýrum og þurfti að rjúfa þjóðveg númer 1 á þremur stöðum til að forða veginum frá frekari skemmdum. Einnig skemmdist brúin yfir Steinavötn í Suðursveit það mikið að ekki verður unnt að hleypa umferð yfir hana á ný heldur verður byggð nú brú. Áætlað er að það taki um eina viku að koma upp bráðabirgðabrú ef allt gengur að óskum.
Atvinnumálanefnd leggur áherslu á mikilvægi áreiðanlegra vegasamgangna á Suðurlandinu öllu, enda er hér um lífæð atvinnulífs og samfélagsins alls að ræða. Enn eru fjölmargar gamlar einbreiðar brýr innan sveitarfélagsins sem eru illa í stakk búnar til að þjónusta þá miklu umferð sem er um svæðið, sem og náttúruhamfarir í líkingu við þær sem urðu í kjölfar mikilli rigninga á svæðinu í liðinni viku. Atvinnumálanefnd leggur til að rýnt verði í ástand vegakerfisins, umferðarmannvirkja og varnargarða á svæðinu og í kjölfarið unnin aðgerðaáætlun-og framkvæmdaáætlun til úrbóta.
Að sama skapi hrósar atvinnumálanefnd öllum viðbragðsaðilum fyrir aðkomu sína að því að koma vegasamgöngum í samt horf á ný.
Að sama skapi hrósar atvinnumálanefnd öllum viðbragðsaðilum fyrir aðkomu sína að því að koma vegasamgöngum í samt horf á ný.
5.
Samstarf í ferðamálum á Suðurlandi
Samstarfshópur í ferðamálum á Suðurlandi áætlar vinnufund í Sveitarfélaginu Hornafirði á næstu vikum. Meðal verkefna hópsins verður að þarfagreina svæðið með tilliti til áhersluverkefna SASS á sviðum ferðamála.
Umræður sköpuðust um áhersluatriði varðandi ferðamál á Suðurlandi.
6.
Cruise Iceland 2017
Fyrirhuguð er vinnustofa um málefni Cruise Iceland í lok október. Ákveðið að atvinnu- og ferðamálafulltrúi sæki vinnustofuna fyrir hönd Hornafjarðarhafnar.
Rætt um mikilvægi þess að markaðssetja Hornafjarðarhöfn og svæðið enn frekar sem áfangastað fyrir minni farþegaskip, enda er það vel til þess fallið að þjónusta þann markhóp.
7.
Matís og matarsmiðjan
Málið er lagt fram til kynningar fyrir atvinnumálanefnd. Það var tekið fyrir á 828. fundi bæjarráðs þann 2. október 2017 og eftirfarandi bókun lögð fram: "Bæjarráð telur ákvörðun Matís að loka matarsmiðjunni á Höfn á grunni fjárlagafrumvarps 2018 vera ótímabæra í ljósi þess að ríkisstjórnin sem lagði frumvarpið fram er fallin og boðað hefur verið til alþingiskosninga. Bæjarstjóra falið að ræða við Matís um áframhaldandi rekstur matarsmiðjunnar á Höfn."
Atvinnumálanefnd tekur undir bókun bæjarráðs.