Fara í efni

Atvinnumálanefnd

36. fundur
17. janúar 2018 kl. 17:00 - 18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Hlíf Gylfadóttir aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Wiktoria Anna Darnowska Fulltrúi ungmennaráðs
Bergþóra Ólafía Ágústsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og rannsóknasjóður 2018
Málsnúmer 201711056
Umsóknarfrestur í Atvinnu- og rannsóknasjóð rann út þann 9. janúar sl. og höfðu þá alls borist sjö umsóknir í sjóðinn. Þar af voru sex þeirra í B hluta sjóðsins og ein í A hluta hans. Alls eru kr. 2.600.000.- til úthlutunar úr sjóðnum árið 2018.
Starfsmaður kynnti umsóknirnar fyrir nefndarmönnum og voru þær metnar með hliðsjón af fyrirliggjandi matsrömmum. Endanleg afgreiðsla verður á 37. fundi atvinnumálanefndar þann 24. janúar nk.
2.
Orkunýtingarstefna SASS 2017-2030
Málsnúmer 201712050
Óskað er eftir umsögn atvinnumálanefndar vegna orkunýtingarstefnu SASS. Var frestað á síðasta fundi.
Atvinnumálanefnd telur Orkunýtingarstefnu SASS mjög metnaðarfulla og tekur heilshugar undir markmið, tillögur og aðgerðar hennar. Stefnan samræmist vel markmiðum Sóknaráætlunar Suðurlands og loftslagsverkefninu sem Sveitarfélagið Hornafjörður er aðili að. Einnig er hún vel til þess fallin að efla atvinnulíf á Suðurlandi, sérstaklega með styrkingu dreifikerfis raforku innan starfssvæðis SASS.

Þessu til viðbótar vill atvinnumálanefnd benda á mikilvægi jöfnunar raforkuverðs á öllu landinu.