Atvinnumálanefnd
37. fundur
24. janúar 2018
kl.
16:30
-
19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage
varaformaður
Hlíf Gylfadóttir
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Wiktoria Anna Darnowska
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Fjallskilasamþykkt
Drög að nýrri fjallskilasamþykkt lögð fyrir atvinnumálanefnd.
Farið yfir drög að nýrri fjallskilasamþykkt fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð. Nokkrar athugasemdir komu fram og var starfsmanni falið að kalla eftir frekari gögnum. Lögð fram tillaga að næstu skrefum.
2.
Atvinnu- og rannsóknasjóður 2018
Umsóknir í atvinnu- og rannsóknarsjóð 2018 lagðar fram til lokaafgreiðslu hjá atvinnumálanefnd. Alls bárust 7 umsóknir í sjóðinn að þessu sinni. Þar af voru sex í B deild og ein í A deild.
Nefndin fór yfir umsóknir í atvinnu- og rannsóknarsjóð 2018.
Að þessu sinni bárust 7 metnaðarfullar umsóknir í sjóðinn, sem allar voru þess verðugar að öðlast styrk. Styrkumsóknir hljóðuðu upp á kr. 4 milljónir en 2.6 milljónir voru til úthlutunar.
Tillaga um úthlutun A-hluta úr atvinnu- og rannsóknarsjóði samþykkt samhljóða.
Tillaga um úthlutun B-hluta úr atvinnu- og rannsóknarsjóði samþykkt samhljóða.
Starfsmanni falið að upplýsa umsækjendur um niðurstöðu nefndar.
Styrkjum verður úthlutað við hátíðlega athöfn samhliða afhendingu menningarverðlauna sveitarfélagsins. Nánar auglýst síðar.
Er það álit atvinnumálanefndar að Atvinnu- og rannsóknasjóður sé búinn að skapa sér sess í samfélaginu sem mikilvægur vettvangur fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir til að sækja í. Síðustu ár hafa mörg verkefni með mikið samfélagslegt gildi orðið að veruleika með tilstuðlan styrks úr sjóðnum. Á það ekki síður við um rannsóknartengd verkefni í sýslunni. Í ljósi þess vill nefndin leggja til við bæjarráð að huga að styrkingu sjóðsins fyrir næstu úthlutun og til framtíðar.

3.
Áfangastaðaáætlun (DMP) fyrir austurhluta Suðurlands/Sveitarfélagið Hornafjörð
Unnið er að gerð Áfangastaðaáætlunar (DMP) fyrir Suðurland. Verkefnastjórar áætlunarinnar koma á fundinn og kynna verkefnið fyrir atvinnumálanefnd og bæjarstjórn.
Anna Valgerður og Laufey verkefnastjórar kynna vinnu við gerð Áfangastaðaáætlunar á Suðurlandi. Umræður sköpuðust um verkefnið. Verkefnið byggir á gögnum frá breiðum hópi hagsmunaaðila, og telur atvinnumálanefnd að það muni nýtast vel við framtíðaruppbyggingu í ferðaþjónustu á svæðinu. Bent er á að íbúafundir eru haldnir á öllu Suðurlandi þar sem áhugasamir eru hvattir til að koma að vinnunni.