Fara í efni

Atvinnumálanefnd

38. fundur
28. febrúar 2018 kl. 17:00 - 20:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage varaformaður
Hlíf Gylfadóttir aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Adisa Mesetovic Fulltrúi ungmennaráðs
Sigríður Lárusdóttir 2. varamaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Fjallskilasamþykkt
Málsnúmer 201709281
Unnið hefur verið að nýrri fjallskilasamþykkt í Sveitarfélaginu Hornafirði og voru drög að henni lögð fyrir til umsagnar hjá Búnaðarsambandi Austur-Skaftafellssýslu. Drögin eru hér með lögð fyrir til efnislegrar umræðu hjá atvinnumálanefnd. Nefnd á vegum Búnaðarsambands Austur-Skaftafellinga (BASK)hefur einnig unnið drög að fjallskilasamþykkt og óskaði hún eftir að fá að kynna hana á fundinum.
Atvinnumálanefnd og nefnd BASK fjölluðu um fjallskilamál og efnislega um þau drög sem liggja fyrir frá sveitarfélaginu og BASK. Að því loknu vék nefnd BASK af fundi og var þeim þakkað fyrir komuna.

Starfsmanni falið að samlesa ábendingar við fyrirliggjandi drög sveitarfélagsins og koma samþykktinni í lögformlegt ferli til samþykktar.

2.
Stefnumótandi stjórnunaráætlun fyrir ferðaþjónustu í hverjum landshluta/Destination management plan (DMP)
Málsnúmer 201709112
Drög að Áfangastaðaáætlun Suðurlands lögð fyrir til umsagnar og athugasemda.
Atvinnumálanefnd lýsir yfir ánægju sinni með þá vinnu sem liggur fyrir vegna áfangastaðaáætlunar fyrir Suðurland. Umræður sköpuðust um efnisþætti og vill nefndin leggja ríka áherslu á virkt samtal og samstarf á milli hagsmunaðila ferðaþjónustu eins og lagt er til í áætluninni.
3.
Endurskoðun á ferðaþjónustukafla Aðalskipulags Hornafjarðar 2012-2030
Málsnúmer 201709115
Hjálögð eru drög að endurskoðaðri ferðamálaskýrslu fyrir Aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Lagt fram til umræðu og ábendinga.
Atvinnumálanefnd fagnar vinnu við endurskoðun ferðaþjónustukafla aðalskipulags, enda telur hún hana nauðsynlega til að atvinnugreinin geti haldið áfram að vaxa og dafna. Starfsmanni falið að fara yfir þá segla sem tilgreindir eru í endurskoðunarkafla. Atvinnumálanefnd leggur áherslu á að skilgreina betur stefnu til uppbyggingar ferðaþjónustu í þéttbýli.
4.
Skólaakstur/skólabyrjun: Hugmynd til umræðu
Málsnúmer 201711037
Málið tekið fyrir á 840. fundi bæjarráðs undir fundargerð fræðslu- og tómstundanefndar. Vísað til umræðu í atvinnumálanefnd, m.t.t. til þarfa atvinnulífs í dreifbýli á almenningssamgöngum.
Ekki hefur verið kortlögð þörf atvinnulífsins á almenningssamgöngum á milli Hafnar og dreifbýlis, en vitað er að starfsmenn ferðast töluvert á milli vinnu sinnar vegna. Einnig er voru umræður um þörf á slíkum samgöngum fyrir eldri borgara til að mynda í félagsstarf.