Atvinnumálanefnd
40. fundur
3. maí 2018
kl.
17:00
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage
varaformaður
Hlíf Gylfadóttir
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Wiktoria Anna Darnowska
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Umsögn: tillaga til þingsályktunar um stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum mynjum
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendi Sveitarfélaginu Hornafirði til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018 - 2029. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 4. maí nk.
Lagt fram til kynningar og umsagnar. Atvinnumálanefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.
2.
Staða á atvinnumarkaði í SVH 2018
Líkt og undanfarin ár er atvinnulíf á svæðinu í miklum blóma, en mikil vöntun er á vinnuafli. Samkvæmt samantekt á atvinnumarkaði á svæðinu þá voru
5 manns á atvinnuleysisskrá m.v. febrúar sl., en þeim hefur fækkað úr 11 síðan um áramót. Er þetta um 0,4% af áætluðu vinnuafli á svæðinu, en það eru 1401 manneskja. Hefur áætluðu vinnuafli fjölgað um 109 manns á síðustu 12 mánuðum, eða úr 1292 aðilum. Á sama tíma hefur atvinnulausum fækkað úr 0.8% í 0.4%.
Af þeim sem eru á skrá hafa 2 aðilar lokið grunnskólamenntun, 2 eru með framhaldsskólamenntun og einn með háskólamenntun. Tveir einstaklingar hafa verið atvinnulausir til skamms tíma, 1 aðili hefur verið án vinnu í 6-12 mánuði og tveir í meira en eitt ár.

3.
Atvinnustefna 2015-
Drög að atvinnustefnu Sveitarfélagsins lögð fyrir atvinnumálanefnd.
Umræða skapaðist um atvinnustefnuna og er starfsmanni falið að vinna úr ábendingum og vísa henni áfram í samþykktarferli.
4.
Markaðs- og kynningarmál á vegum sveitarfélagsins
Starfsmaður leggur fyrir minnisblað vegna markaðs- og kynningarmála í Sveitarfélaginu Hornafirði.Kynntur nýr bæklingur fyrir ferðamenn sem sveitarfélagið gefur út í samstarfi við Markaðsstofu Suðurlands.
Umræður sköpuðust um hvernig skuli haga markaðs- og kynningarmálum þegar samningi við Ríki Vatnajökuls ehf. lýkur í árslok 2018.
Nefndin telur mikilvægt að áfram verði fulltrúi frá Sveitarfélaginu Hornafirði sem sinni kynningarmálum fyrir svæðið.
Nefndin telur mikilvægt að áfram verði fulltrúi frá Sveitarfélaginu Hornafirði sem sinni kynningarmálum fyrir svæðið.