Atvinnumálanefnd
41. fundur
23. maí 2018
kl.
17:00
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage
varaformaður
Hlíf Gylfadóttir
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi.
Sveitarfélagið Hornafjörður er þátttakandi í norrænu samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi ásamt 14 öðrum sveitarfélögum frá Norðurlöndunum. Sveitarfélögunum er skipt í fjóra hópa og er SVH í hóp með Sonderborg í Danmörku, Ystad í Svíþjóð og Narvik í Noregi. Hefur hópurinn lokið umsókn í heildarverkefnið vegna aðgerðaráætlunar (e. action plan) og er niðurstöðu Norrænu ráðherranefndarinnar að vænta í júní. Umsóknin er lögð fram til kynningar.
Atvinnumálanefnd telur mjög brýnt að unnið verði heildstætt skipulag um vistvæna ferðamáta (göngu- og hjólastíga) bæði í þéttbýli og dreifbýli líkt og umsóknin gerir ráð fyrir. Styður hún við aukna sjálfbærni og heilsueflandi lífsstíl í samfélaginu. Fái umsóknin brautargengi er næsta skre að skipa starfshóp til að fylgja verkefninu eftir. Verkefnið nær út árið 2019 og lýkur með loka ráðstefnu allra norrænu þátttöku sveitarfélaganna. Áætlað er að hún verði á Íslandi.
2.
Stefnumótandi stjórnunaráætlun fyrir ferðaþjónustu í hverjum landshluta/Destination management plan (DMP)
Fyrir liggja drög að áfangastaðaáætlun fyrir Suðurland. Þau eru lögð fram til kynningar í atvinnumálanefnd, en endanleg áætlun kemur til opinberrar birtingar í sumar.
Atvinnumálanefnd er sammála um að vönduð vinna liggi að baki Áfangastaðaáætlun Suðurlands og fagnar því að hún komi til opinberrar birtingar innan tíðar. Um er að ræða heildstæða áætlun fyrir ferðaþjónustuna á Suðurlandi með tilliti til náttúru, menningarminja og samfélags. Í henni felst sameiginleg viljayfirlýsing um hvernig á að stýra áfangastað yfir ákveðinn tíma. Er það trú atvinnumálanefndar að áætlunin muni nýtast öllum hagsmunaaðilum ferðaþjónustunnar, bæði atvinnugreininni sjálfri, hinu opinbera og íbúum.