Atvinnumálanefnd
43. fundur
22. ágúst 2018
kl.
16:00
-
17:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Þórhallsdóttir
formaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson
aðalmaður
Jörgína Elínbjörg Jónsdóttir
aðalmaður
Sigurður Einar Sigurðsson
aðalmaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Matís og matarsmiðjan
Eftirfarandi bókun var lögð fram á 862. fundi bæjarráðs þann 4. júlí 2018:Lagður fram til kynningar samningur sveitarfélagsins við Sláturfélagið Búa um leigu á vesturenda húsnæðis Norðlenska. Húsnæðið hefur verið afhent og hægt að hefja standsetningu og undirbúning á flutningi matarsmiðju sem fyrirhugaður er í ágúst/sept.Málinu var vísað til framkvæmdar hjá atvinnu- og ferðamálafulltrúa.
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi kynnir stöðu vegna fyrirhugaðrar matarsmiðju fyrir atvinnumálanefnd. Starfsmenn Matís væntanlegir á næstu vikum og eru fyrirhugaðir flutningar á tækjum í húsnæði sláturhússins í framhaldi af því. Starfsmanni falið að fylgja málinu eftir.
2.
Atvinnustefna 2015-
Drög að atvinnustefnu lögð fyrir nýja atvinnumálanefnd.
Atvinnumálanefnd leggur til að vinna áfram á grunni þeirra draga sem fyrir liggja.
3.
Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi.
Gögn vegna norræns samstarfsverkefnis lögð fram til kynningar.
Starfsmaður fer yfir gögn og kynnir verkefnið fyrir atvinnumálanefnd.