Atvinnumálanefnd
44. fundur
9. október 2018
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Þórhallsdóttir
formaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson
aðalmaður
Jörgína Elínbjörg Jónsdóttir
aðalmaður
Sigurður Einar Sigurðsson
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Árdís Erna Halldórsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Umsókn í atvinnu- og rannsóknasjóð 2017. Landmótun og lífríki í Skúmey á Jökulsárlóni á tímum loftslagsbreytinga.
Kristín Hermannsdóttir, forstöðumaður Náttúrustofu Suðausturlands kynnir niðurstöður verkefnis um landmótun og lífríki í Skúmey á Jökulsárlóni. Verkefnið var m.a. styrkt af Atvinnu- og rannsóknasjóði Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
2.
Ríki Vatnajökuls 2018
Lögð fram innsend erindi frá Ríki Vatnajökuls ehf., en samstarfssamningur á milli Sveitarfélagsins og Ríkis Vatnajökuls ehf. er í gildi út árið 2018.
Lagt fram erindi Ríki Vatnajökuls ehf. þar sem óskað er endurnýjunar á samningi við Sveitarfélagið Hornafjörð. Umræður sköpuðust um núverandi samning og stefnu félagsins. Atvinnumálanefnd óskar eftir frekari stefnumótun frá félaginu og einnig upplýsingar um hlutfall rekstraraðila í ferðaþjónustu sem eru aðilar í Ríki Vatnajökuls. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnarformanni er áformaður fundur með hluthöfum í nóvember þar sem sveitarfélagið mun kalla eftir frekari upplýsingum.
3.
Fjárhagsáætlun 2019
Lagt fram minnisblað varðandi aukið fjármagn í markaðs- og kynningarmál á vegum Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Minnisblaði vísað til bæjarráðs í áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun.
4.
Matís og matarsmiðjan
Bókun af 868. fundi bæjarráðs þann 10. september sl.: "Matthildur fór yfir drög að samningi við Matarsmiðjuna. Vísað til áframhaldandi vinnu í atvinnumálanefnd."
Farið yfir drög að samningi við Matís um Matarsmiðjuna. Atvinnumálanefnd felur starfsmanni að vinna áfram að samningi við Matís og leggur áherslu á að vel verði haldið utan um starfsemi Matarsmiðjunnar.
5.
Fundargerðir: stjórnar og svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarður 2018
Fundargerðir svæðisráðs Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs og stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs lagðar fram til kynningar hjá atvinnumálanefnd.
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.
6.
Staða á atvinnumarkaði í SVH 2018
Sem fyrr er atvinnulíf á svæðinu í miklum blóma og vöntun á vinnuafli. Samkvæmt samantekt á atvinnumarkaði á svæðinu voru 4 aðilar á atvinnuleysisskrá m.v. ágúst sl. Hefur atvinnulausum fækkað úr 11 manns síðan um áramót. Er þetta um 0,3% af áætluðu vinnuafli á svæðinu, sem telur alls 1391. Hefur atvinnuleysi mælst lágt undanfarna 12 mánuði, en mest farið í 0,8% í nóvember 2017.