Fara í efni

Atvinnumálanefnd

45. fundur
17. desember 2018 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Kolbrún Reynisdóttir 2. varamaður
Erla Rún Guðmundsdóttir varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson aðalmaður
Jörgína Elínbjörg Jónsdóttir aðalmaður
Sigurður Einar Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Áfangastaðaáætlun (DMP) fyrir austurhluta Suðurlands/Sveitarfélagið Hornafjörð
Málsnúmer 201709195
Gefin hefur verið út áfangastaðaáætlun (DMP) fyrir Suðurland. Markaðsstofa Suðurlands býður upp á kynningu á áætluninni fyrir hvert svæði.
Áfangastaðaáætlun fyrir Suðurland lögð fram til kynningar. Atvinnumálanefnd leggur áherslu á að fá starfsmenn Markaðsstofu Suðurlands til að kynna áætlunina í sveitarfélaginu snemma á nýju ári.
2.
Matís og matarsmiðjan
Málsnúmer 201709565
Unnið er að gerð samnings við Nýheima Þekkingarsetur og eru drög að samningi í fylgigögnum. Enn á eftir að fullvinna gjaldskrá.
Atvinnumálanefnd samþykkir framlögð drög að samstarfssamning við Nýheima Þekkingasetur um umsýslu Matarsmiðjunnar og felur starfsmanni að klára samninginn. Jafnframt felur atvinnumálanefnd starfsmönnum að ljúka við gerð gjaldskrár þannig að greitt verði fyrir notkun heilan og hálfan dag og jafnframt fyrir tækjanotkun. Opnun Matarsmiðju verði í kjölfarið kynnt fyrir íbúum. Atvinnumálanefnd óskar eftir að fá að skoða Matarsmiðjuna á næsta fundi.
3.
Atvinnu- og rannsóknasjóður 2018
Málsnúmer 201711056
Auglýst verður í þessari viku eftir styrkumsóknum í Atvinnu- og rannsóknasjóð. Atvinnumálanefnd hvetur áhugasama til að sækja um fjármagn sjóðinn. Bent er á að þjónusta við gerð styrkumsókna er í boði á svæðinu hjá atvinnuráðgjöfum SASS. Ákveðið að boða til aukafundar í atvinnumálanefnd að loknum umsóknarfresti. Samkvæmt reglum sjóðsins skulu niðurstöður um styrkveitingu liggja fyrir þann 31. janúar.
4.
Fundargerðir: stjórnar og svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarður 2018