Atvinnumálanefnd
8. fundur
26. ágúst 2015
kl.
17:00
-
17:55
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Ottó Marvin Gunnarsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnustefna 2015-
Formaður setur fund og býður fundarmenn velkomna.
Starfsmaður kynnti stöðu mála vegna vinnslu atvinnustefnu og hugmynd að verkferlum í tengslum við aðgerðalista. Áhersla er lögð á að ferlið sé lifandi og að íbúar geti fylgst með framgöngu verkefna. Nefndin samþykkti tillögur að verkferlum og fól starfsmanni að fylgja þeim eftir.

2.
Ræsing
Starfsmaður kynnti stöðu verkefnisins "Ræsing" sem samþykkt hefur verið hjá bæjarráði að bjóða upp á í Hornafirði á haustdögum í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og atvinnulíf á svæðinu. Undirbúningur og fjármögnun verkefnisins er komin vel á veg. Starfsmaður uppfærir tíma- og verkáætlun og áhersla verður lögð á að kynna verkefnið vel fyrir áhugasömum áður en opnar fyrir umsóknir.
3.
Seatrade Hamburg 2015
Starfsmaður kynnir að hafnarstjórn hafi ákveðið á 177. fundi sínum þann 16. júlí s.l. að senda tvo starfsmenn sveitarfélagsins á Seatrade skemmtiferðaskiparáðstefnu í Hamborg dagana 9.-11. september n.k. Mun atvinnu- og ferðamálafulltrúi fara á ráðstefnuna ásamt starfsmanni Hornafjarðarhafnar.