Fara í efni

Atvinnumálanefnd

9. fundur
23. september 2015 kl. 15:00 - 20:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Óðinn Eymundsson varaformaður
Ottó Marvin Gunnarsson aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Samspil menntunar og atvinnulífs
Málsnúmer 201509109
Óskað var eftir þátttöku atvinnumálanefndar í menntastefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar þar sem eiga sér stað þverfaglegar samræður á milli atvinnulífs og menntunar. Eftirfarandi atriði eru m.a. til umræðu:Liggja ónýtt tækifæri í samvinnu faggreina og fyrirtækja í atvinnulífinu við þekkingar- og menntastofnanir í Sveitarfélaginu ? Liggja ónýtt tækifæri í slíkri samvinnu til þess að halda í unga fólkið okkar eða fá það til að starfa hér á heimaslóðum eftir framhaldsmenntun annars staðar ?Hverjar eru væntingar atvinnulífsins til menntunar í sveitarfélaginu ? Gæti atvinnulífið komið verkefnum og hugmyndum á framfæri inn í skólana til þess að hvetja til samstarfs um menntuní ákveðnum greinum ?
Atvinnumálanefnd fagnar vel heppnaðri ráðstefnu um samspil atvinnulífs og menntunar og vill þakka þeim sem að stóðu, fyrirlesurum og ekki síst öllum þeim sem þátt tóku. Fundarmenn voru sammála um að þar fóru fram fróðleg erindi og umræður og vill nefndin halda áfram samtalinu á milli atvinnulífs og skóla.

2.
Atvinnustefna 2015-
Málsnúmer 201501083
Fjölmörg verkefni hafa komið fram í vinnu vegna atvinnumálastefnu og er hér lögð fram tillaga að forgangsröðun þeirra m.v. það vægi sem verkefnin hafa fengið í gegnum atvinnustefnu vinnuna. Áfram verður unnið með þau verkefni sem fara í forgang og verða þau sett upp í aðgerðaráætlun.
Lögð var fyrir forgangsröðun verkefna í atvinnustefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Atvinnumálanefnd samþykkir að vinna áfram með þau verkefni sem koma fram á forgangslista og fela starfsmanni að vinna áfram með þau í samstarfi við SASS.

Atvinnumálanefnd leggur áherslu á að byggja upp og koma Miklagarði og Netaloftinu í notkun svo af skapist störf og tekjur af húsunum.

Ottó vék af fundi eftir þennan lið.
3.
Hornafjarðarsöfn - Mikligarður framtíðarsýn
Málsnúmer 201408053
Samkvæmt eftirfarandi bókun lagði Menningarmálanefnd til á 8. fundi sínum að Atvinnumálanefnd fjallaði um málefni Miklagarðs:4. 201408053 - Hornafjarðarsöfn - Mikligarður framtíðarsýnNefndin leggur til að Miklagarður verði gerður upp í eins upprunalegri mynd og kostur er. Mikilvægt er að hafa kostnaðarliði á hreinu varðandi uppgerð á þeim þáttum sem nauðsynlegar eru til þess að húsið verði rekstrarhæft. Ljóst er að drena þarf frá norður-hlið Miklagarðs þar sem kjallarinn liggur undir skemmdum.Öll gögn m.a. kostnaðarmat á dreni, sem hafa verið tekin saman varðandi Miklagarð á undaförnum árum eða allt frá árinu 2006 eru undir málsnúmeri 201408053.Nefndin leggur til að Atvinnumálanefnd fjalli um málefni Miklagarðs.
Atvinnumálanefnd fagnar því að fá tækifæri til að fjalla um málefni Miklagarðs, enda telur nefndin að Mikligarður hafi veigamiklu hlutverki að gegna við uppbyggingu atvinnulífs í Hornafirði.

Samhljómur er um mikilvægi þess að gera Miklagarð vatns- og vindheldan sem allra fyrst svo starfsemi geti þrifist í honum. Atvinnumálanefnd hvetur til þess að Mikligarður verði gerður upp á þann hátt að þar þrífist fjölbreyttur atvinnurekstur svo sem fyrir veitingasölu og skapandi greinar.

4.
Fjallskil og fjallskilasamþykktir
Málsnúmer 201409070
Atvinnumálanefnd leggur áherslu á að fjallskil í sveitarfélaginu séu skipulögð með einum aðila úr hverri sveit til að almenn sátt ríki um málefnið. Starfsmanni falið að koma að skipun fjallskilanefndar samkvæmt fjallskilalögum.