Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1000. fundur
10. ágúst 2021 kl. 12:00 - 13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Starfsmannamál
Málsnúmer 202107003
Starfslýsing mannauðs- og gæðastjóra lögð fram til kynningar.
Sveitarfélagið leggur metnað sinn í góða þjónustu og stuðning við stjórnendur, bæjarráð telur nauðsynlegt að halda áfram með starf mannauðs- og gæðastjóra.
2.
Deiliskipulag: Reynivellir II
Málsnúmer 1904057
Markmiðið með gerð deiliskipulagsins er að byggja upp ferðaþjónustu, gistingu og/eða hótel. Nýtt þjónustusvæði VÞ45 liggur sunnan þjóðvegar og er í landi Reynivalla ll. Markmið er að reisa hótel á svæðinu auk þess að styrkja þjónustu við ferðamenn og heimamenn svo sem með vöru- og eldsneytissölu auk ýmis konar afþreyingu s.s. sölu á jökla- og gönguferðum, leiðsögn o.fl. Tillagan var áður auglýst frá 29. janúar til 11. mars 2020. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, HAUST, Vegagerðinni, Náttúrustofu Suðausturlands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Minjastofnun og Veðurstofunni. Brugðist var við athugasemdum sem fram komu á auglýsingartíma. Á grundvelli umsagna var unnið mat á flóðahættu á svæðinu. Tillagan var í kynningu að nýju frá 15. júní til 29. júlí engar athugasemdir bárust á þeim kynningartíma.
Bæjarráð samþykkir nýtt deiliskipulag fyrir Reynivelli II og vísar því í lögformlegt kynningarferli skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga.*
3.
Umsókn um lóð Ósland lóð K (Sandeyri 10)
Málsnúmer 202002027
Góð framkvæmd óskar eftir að fresta framkvæmdum á lóð að Sandeyri 10, bæjarráð veitti frest áður til 13. átúst.
Lagt fram til kynningar.
Ákvörðun frestað til næsta fundar.
4.
Umsókn um lóð Ósland lóð J (Sandeyri 8)
Málsnúmer 201904026
Góð framkvæmd óskar eftir að fresta framkvæmdum á lóð að Sandeyri 8, bæjarráð veitti frest áður til 19. júlí.
Lagt fram til kynningar.
Ákvörðun frestað til næsta fundar.
5.
Sjónarhóll - mönnunarþörf vegna afleysinga
Málsnúmer 202106048
Ósk um fjölgun stöðugilda við Leikskólann Sjónarhól.
Bæjarráð samþykkir að auka við þrjú stöðugildi í leikskóla.
Vísað til fjármálastjóra til gerðar viðauka II við fjárhagsáætlun 2021.
6.
Fyrirspurn vegna inntöku barna í Leikskólann Sjónarhól
Málsnúmer 202108006
Fyrirspurn um verklag og fleira við inntöku barna á Leikskólann Sjónarhól.
Starfsmönnum falið að svara erindinu.
7.
Samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu á íbúðum á Höfn
Málsnúmer 202103066
Ósk Leigufélagsins Bríetar og Mikaels ehf. um afslátt af gatnagerðargjöldum sem falla á íbúðir sem Bríet mun kaupa.
Bæjarráð samþykkir að veita 50% afslátt af gatnagerðargjöldum sem stuðning við uppbyggingu á leiguíbúðum opinberra aðila á Höfn.