Bæjarráð Hornafjarðar
1001. fundur
17. ágúst 2021
kl.
14:30
-
16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 26
Fundargerð samþykkt.
2.
Velferðarnefnd - 6
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð óskar eftir að ungmennaráð skipi áheyrnafulltrúa í velferðarnefnd.
Bæjarráð óskar eftir að ungmennaráð skipi áheyrnafulltrúa í velferðarnefnd.
3.
Umsókn um lóð Ósland lóð J (Sandeyri 8)
Erindi frá Góð framkvæmd um framlengingu á frest á framkvæmdum á lóð Sandeyri 8.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 31. desember 2021 og felur starfsmönnum að upplýsa umsækjanda um skipulagsmál.
4.
Umsókn um lóð Ósland lóð K (Sandeyri 10)
Erindi frá Góð framkvæmd um framlengingu á frest á framkvæmdum á lóð Sandeyri 10.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 31. desember 2021 og felur starfsmönnum að upplýsa umsækjanda um skipulagsmál.
5.
Framkvæmd - Hafnarbraut - Hellulagnir
Umhverfis- og skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við Hafnarbraut. Ef gangstéttar við Hafnabraut verði hellulagðar í stað malbikunnar mun kostnaður verða 15 milljónum kr. hærri.
Lagt til að bæjarráð samþykki að veita 15 milljón kr. aukafjármagn til hellulagningar á Hafnarbraut. Vísað til fjármálastjóra að skoða áhrif á fjárhagsáætlun 2021.
6.
Nafnasamkeppni - starfsemi Víkurbrautar 24
Bæjarráð felur starfsmönnum að auglýsa nafnasamkeppni.
7.
Ákvörðun ráðherra um starfhæfi sveitarstjórna og nýtt heimildarákvæði sveitarstjórnarlaga
Fyrirliggjandi auglýsing um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og auðvelda ákvarðanatöku lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
8.
Stafræn framþróun sveitarfélaga
Greining Sambands íslenskra sveitarfélaga á stafrænu færnimati og upplýsingakerfi sveitarfélaga lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
9.
Beiðni um landskipti - Hagi
Engar stórvægilegar breytingar eru á landnotkun tekin verður út lóð þar sem byggja á einbýlishús á jörðinni.
Erindi frá Snorra Snorrasyni fyrir hönd landeiganda að jörðinni Haga.
Marta K. Grönvold Björnsdóttir kt 160356-5539, óskar eftir að skipta lóð úr jörðinni Haga landeignanúmer: L159482 og fasteignanúmer F2180192, útskipting á lóðinni Hagi 3, landeignanúmer L231921 úr upprunalandinu. Land Haga 3 liggur allt innan upprunalandsins og á ekki landamerki að öðrum jörðum.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

10.
Umsögn um útgáfu leyfa: Gistihús GST
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstarleyfi að Bjarnarhól 9 Gistihús GST, til sölu gistingar í flokki II minna gistiheimili.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að það gildi fyrir fjóra gesti.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa Haukaberg Homestay
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstarleyfi í Hraunhól 7 til sölu gistingar í flokki II minna gistiheimili.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn að því skilyrði að bætt verði úr merkingum innan þriggja mánaða frá útgáfu leyfis.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa Bogaslóð 4, Sigurhæð
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstarleyfi að Bogaslóð 4 til sölu gistingar í flokki II minna gistiheimili.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með þeim skilyrði að bætt verði úr bílastæðum og fullnægjandi merkingar tryggðar innan þriggja mánaða.
13.
Umsögn um útgáfu leyfa - Hrísbraut 2
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstarleyfi að Hrísbraut 2 til sölu gistingar í flokki II minna íbúðir.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með því skilyrði að merkingar verði lagfærðar innan þriggja mánaða
14.
Umsögn um útgáfu leyfa - Bogaslóð 6, Sólhóll
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstarleyfi að Bogaslóð 6 til sölu gistingar í flokki II minna gistiheimili.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með því skilyrði að bætt verði úr merkingum innan þriggja mánaða frá útgáfu leyfis.
15.
Samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu á íbúðum á Höfn
Bæjarstjóri gerði grein fyrir ósk um rökstuðning á afslætti af gatnagerðargjöldum vegna íbúða til Leigufélagsins Bríetar ehf.
Ákvörðun bæjarráðs á 1000. fundi er tekin á grundvelli 6. gr. laga nr. 153/2006 um gatnagerðargjöld.
Þar sem kemur fram að sveitarstjórn er heimilt að lækka eða fella niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður, svo sem vegna þéttingar byggðar, atvinnuuppbyggingar, lítillar ásóknar í viðkomandi lóð eða eftirspurnar eftir leiguhúsnæði. Sveitarstjórn er enn fremur heimilt að lækka eða fella niður gjöld vegna sérhæfðs félagslegs húsnæðis, svo sem sambýla fyrir fatlaða, þjónustuíbúða fyrir aldraða og félagslegs leiguhúsnæðis enda sé slíkt húsnæði í eigu stofnana, félagasamtaka eða félaga sem ekki eru rekin í ágóðaskyni.
Leigufélagið Bríet er óhagnaðardrifið leigufélag með það að markmiði að byggja upp og styrkja leigumarkað á landsbyggðinni í samstarfi við sveitarfélögin í landinu.