Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1002. fundur
24. ágúst 2021 kl. 14:30 - 15:30
Teams Meating
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 81
Málsnúmer 2108001F
Fundargerð samþykkt.
2.
Reglur um starfsemi leikskóla
Málsnúmer 202103043
Breytingar á reglunum snýr að skilyrðum fyrir leikskóladvöl barns.
Bæjarráð samþykkir reglurnar með breytingum sem snýr að lögheimilisskráningu barns, að foreldrar geti sent staðfestingu um fyrirhugaðan flutning.
3.
Frístundaakstur 2021-22
Málsnúmer 202108008
Frístundaakstur hefur verið vel nýttur. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að áframhald á þjónustunni.
Bæjarráð fagnar því hversu vel frístundaaksturinn hefur verið nýttur og samþykkir að frístundaakstur verði hluti af varanlegri þjónustu fyrir börn búsett í dreifbýlinu.
4.
Landskipti - Háhóll
Málsnúmer 202106108
Lóðin Háhóll var stofnuð út úr landi Hjarðarness árið 2000. og leigð skv. lóðarleigusamningi. Í dag er íbúðarhús ásamt bílskúr á lóðinni og er það í eigu lóðarleiguhafa.
Erindi frá Snorra Snorrasyni fyrir hönd landeiganda að jörðinni Hjarðarnes. Lovísa Eymundsdóttir kt. 151244-2629, óskar eftir að skipta lóð úr jörðinni Hjarðarnes landeignanúmer: L159484 og fastanúmer F2180204, útskipting á lóðinni Háhóll, landeignanúmer L189543 og fastanúmer F2267484, úr upprunalandinu. Útskipting lóðarinnar rýrir ekki upprunalandið svo neinu nemi. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.
Drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða
Málsnúmer 202108062
Stefna í heilbrigðisþjónustu aldraðra er í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar.
Bæjarstjóra falið að skrifa drög að umsögn og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.
6.
Framkvæmd - Hafnarbraut - Hellulagnir
Málsnúmer 202105072
Framhaldsumræða frá síðasta fundi bæjarráðs.
Lagt fram til kynningar.
7.
Íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 202009026
Ein íbúð að Sandbakkavegi 2 stendur nú auð. Um er að ræða eina af þeim íbúðum sem starfsmenn lögðu til að selja. Lagt er til að setja íbúðina í söluferli.
Bæjarráð samþykkir að hefja söluferli á íbúð að Sandbakkavegi 2.
Bæjarráð felur starfsfólki að útbúa reglur að þeirri fyrirmynd sem lagðar eru til í minnisblaði. Söluferlið byggi á söluferli annarra sveitarfélaga sem kynnt er í minnisblaðinu.
8.
Fundargerð - stjórn samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202102059
Lagt fram til kynningar.