Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1003. fundur
31. ágúst 2021 kl. 14:30 - 16:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 30
Málsnúmer 2108010F
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 239
Málsnúmer 2108012F
Fundargerð samþykkt.
3.
Breyting á jarðalögum - verklag sveitarfélagsins
Málsnúmer 202107018
Vegna breytinga á jarðalögum nr. 81/2004 þar sem skylda ráðherra til að samþykkja breytta landnotkun á landbúnaðarsvæðum er færð yfir til sveitarfélaga. Lögð er fram tillaga að nýju verklagi sveitarfélagsins og kröfur um skil á gögnum við uppskiptingu jarða og breytingar á landnotkun á landbúnaðarsvæðum.
Bæjarráð samþykkir verklagsreglurnar um landskipti og breytta notkun á landbúnaðarlandi.
4.
Framkvæmd - Hafnarbraut - Hellulagnir
Málsnúmer 202105072
Lagt framt tilboð vegna framlengingar hellulagnar á gatnamótum Víkurbraut/Hafnarbraut við Gömlubúð.
Bæjarráð samþykkir framkvæmdina. Bæjarráð vísar málinu til fjármálastjóra og gerðar viðauka III og óskar eftir uppfærslu á kostnaðaráætlun með tilliti til endurgreiðslna af vinnulið og þeirra aukaverka sem fallið hafa til á verktímanum og styrk vegna hluta fráveituframkvæmda.
5.
Fyrirspurn - Malbikað bílastæði við smábátahöfn
Málsnúmer 202105087
Lögð fram drög að hönnun og kostnaðaráæltun vegna malbikunar á bílastæði við smábátahöfn.
Bæjarráð samþykkir framkvæmdina og vísar málinu til fjármálastjóra og gerðar viðauka III.
6.
Leiðarhöfði - Hönnunarsamkeppni
Málsnúmer 202104018
Drög að forvalsgögnum lögð fram.
Bæjarráð leggur til að fylgja leið 1. skv. minnisblaði og í samræmi við umræður á fundinum.
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
7.
Ósk um hjólaboga víðsvegar um bæinn
Málsnúmer 202108088
Erindi frá Guðrúnu Stefaníu V. Ingólfsdóttur er varðar fjölgun reiðhjólastanda.
Bæjarráð bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og vísar því nánari útfærslu og vinnu starfsmanna.
8.
Ósk um söfnun undirskrifta vegna breytingar á aðalskipulagi og deiliskipulagi í "innbæ"
Málsnúmer 202011025
Söfnun undirskrifta vegna breytinga á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi innbæ til þess að óska eftir almennri atkvæðagreiðslu/íbúakosningu fór fram hjá Þjóðskrá. Á kjörskrá voru 1590 einstaklingar fjöldi þeirra sem skráðu nafn sitt á undirskriftalistann er 353 eða 22,2 %.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu í samstarfi við Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið.
9.
Gamlabúð Rekstur upplýsingamiðstöðvar
Málsnúmer 202010035
Erindi frá þjóðgarðsverði á Suðursvæði um aðkomu sveitarfélagsins að rekstri upplýsingamiðstöðvar í Gömlubúð.
Bæjarráð vísar málinu til umræðu í atvinnu- og menningarmálanefnd.
10.
Drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða
Málsnúmer 202108062
Drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða lögð fram, óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
11.
Reglur um sölu íbúða í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202108091
Reglur um sölu íbúða í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar lagðar fram til samþykktar.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
12.
Fjárhagsáætlun 2022-2025
Málsnúmer 202108093
Erindi frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga þar sem lögð er fram forsendur fjárhagsáætlana 2022-2025.
13.
Raforkukostnaður vegna sundlaugar
Málsnúmer 202108069
Sveitarfélaginu barst reikningur frá Rarik að upphæð rúmlega 14 m.kr. vegna vankanta í tengingu nýrra mæla og greiðslukerfis Rarik. Meðfylgjandi þessu máli er bréf sem sent var á forstjóra vegna málsins þar sem farið er fram á afslátt og betri kjör en gjaldskrá segir til um.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
14.
Fjallskilabréf 2021
Málsnúmer 202108098
Fjallskilabréf er gefið út í samræmi við Fjallskilasamþykkt fyrir Austur-Skaftafellssýslu nr. 716/2021 sem Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur staðfest.
Bæjarstjóra falið að gefa út fjallskilabréf.
15.
Samkomulag vegna B-deildar Stofnsjóðs Sláturfélagsins Búa
Málsnúmer 202108102
Erindið var samþykkt með tölvupósti fyrr í vikunni og er hér tekið fyrir formlega.
Bæjarráð samþykkti í tölvupósti samkomulag vegna B deildar stofnsjóðs í Sláturfélagi Búa.