Bæjarráð Hornafjarðar
1004. fundur
7. september 2021
kl.
14:30
-
16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 27
Fundargerð samþykkt.
2.
Gatnamót Kirkjubraut - Víkurbraut
Erindi frá Silju Rós Halldórsdóttur þar sem hún bendir á slysahættu á gatnamótum Kirkjubrautar og Víkurbrautar.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og felur starfsmönnum að skoða úrbætur á gatnamótunum og vísar málinu í aðgerðaráætlunar umferðaröryggisáætlunar.
3.
Reglur og gjaldskrá- refa og minkaveiði
Unnar hafa verið breytingar á reglum um refa- og minnkaveiði gjaldskrá verður unnin sérstaklega í framhaldinu.
Bæjarráð samþykkir reglur um refa- og minnkaveiðar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
4.
Ósk um malbik á göngustíg - Hólabraut
Erindi frá Sigfúsi Má Þorsteinssyni og Janine Arens þar sem þau óska eftir að sveitarfélagið malbiki göngustíg við hlið hússins á Hólabraut 13.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og vísar því til skoðunar hjá umhverfis- og skipulagstjóra í samhengi við vinnu við malbikunarframkvæmdir.
5.
Hönnun: Mikligarður 2020 -2021
Bæjarráð samþykkir að haldið verði áfram með hönnun á grunni framlagðra teikninga sem liggja fyrir fundinum og vísar þeim til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
6.
Ósk um aukið starfshlutfall húsvarðar í Mánagarði
Beiðni um aukið starfshlutfall húsvarðar í Mánagarði með það í huga að húsvörður sé með viðveru á laugardögum.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2022.
7.
Ósk um styrk vegna Humarhátíðar
Erindi frá Körfuknattnleiksdeild Sindra þar sem óskað er eftir styrk vegna Humarhátíðar 2021.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að skoða svigrúm innan fjárhagsáætlunar Humarhátíðar.
8.
Alþingiskosningar - Kjörskrá 2021
Kjörskrárstofn vegna alþingiskosninga lagður fram.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Ósk um umsögn að breytingum á leiðbeiningum um ritun fundargerða og notkun fjarfundarbúnaðar
Erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem óskað er eftir umsögn við drög á uppfærslu leiðbeininga um ritun fundargerða nr. 22/2013 annarsvegar og notkun fjarfundarbúnaðar nr. 1140/2013. Óskar ráðuneytið eftir áliti sveitarfélagsins um hvort þörf sé að halda gerðarbækur þar sem fundargerðir eru færðar á rafrænu formi.
Lagt fram til kynningar.
10.
Ársþing SASS 2021
Boð á ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 28. og 29. október nk. á Stracta hótelinu á Hellu
Bæjarráð felur starfsmönnum að senda kjörbréf.
11.
Umsókn um lóð - Borgartún 1 og 2
Umsókn Straumhvarfs ehf. um lóð að Borgartúni 1. og 2.
Bæjarráð mælir með lóðarúthlutuninni og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn með fyrirvara um að gögn sem kveðið er á um reglum um úthlutun lóða berist á tilsettum tíma.
12.
Umsókn um lóð - Borgartún 1, 2, 3 eða 5
Umsókn um lóð að Borgartúni 3.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni með fyrirvara um að farið verði eftir ákvæðum í deiliskipulagi og með fyrirvara um að gögn sem kveðið er á um reglum um úthlutun lóða berist á tilsettum tíma.
13.
Umsókn um lóð: Hagaleira 14
Óskað er eftir frestun á framkvæmdum.
Bæjarráð veitir frest til 15. október 2021.
14.
Reglur um sölu íbúða í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Bæjarráð samþykkir reglur um sölu íbúða í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
15.
Sala íbúða í eigu sveitarfélagsins
Verðmat lagt fyrir bæjarráð vegna sölu tveggja íbúða að Sandbakkavegi 2 og 4.
Bæjarráð samþykkir sölu á Sandbakkavegi 4 - 101 og Sandbakkavegi 2 - 102 samkvæmt þeim reglum um sölu íbúða í eigu sveitarfélagsins sem samþykktar voru á fundinum. Vísað til samþykktar bæjarstjórnar.
16.
Umsögn um útgáfu leyfa - Nónhamar
Bæjarráð er jákvætt fyrir útgáfu leyfisins.