Bæjarráð Hornafjarðar
1005. fundur
14. september 2021
kl.
14:30
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 7
Fundargerð samþykkt.
2.
Fjárhagsáætlun 2022-2025
Dagskrá fjárhagsáætlunar lögð fram.
3.
Kirkjubraut - Ósk um úrbætur vegna Hraðaksturs
Erindi frá íbúum við Kirkjubraut þar sem óskað eftgir úrbótum vegna hraðaksturs á Kirkjubraut.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og felur starfsmönnum að skoða úrbætur og vísar málinu til aðgerðaráætlunar umferðaröryggisáætlunar.
4.
Hlíðartún Víkurbraut - Umferðaöryggi og gangstéttar
Erindi frá Elsu Gerði Hauksdóttur það sem hún bendir á ýmis mál varðandi umferðaröryggi og gangstéttir.
Bæjarráð þakkar fyrir ábendingarnar er varðar göngustíga, umferðaröryggi og gangstéttir. Starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs hefur unnið forgangsröðun viðhaldsframkvæmda á götum og gangstéttum. Það er uppsöfnuð þörf sérstaklega á viðhaldi gangstétta sem mun vinnast smám saman á næstu árum. Málinu er vísað til vinnu við aðgerðaráætlun í tengslum við umferðaröryggisstefnu og til starfsmanna umhverfis- og skipulagssviðs.
5.
Ósk um að lagfæra göngustíg við endann á Hólabraut, upp við Mánabraut 2
Erindi frá Maríu Rut Baldursdóttur þar sem hún óskar eftgir að gengið verði frá göngustíg við Mánabraut að Hólabraut.
Bæjarráð þakkar fyrir ábendingarnar er varðar göngustíginn. Starfsfólk umhverfis- og skipulagssviði hefur unnið forgangsröðun viðhaldsframkvæmda á götum og gangstéttum. Það er uppsöfnuð þörf sérstaklega á viðhaldi gangstétta sem mun vinnast smám saman á næstu árum. Málinu er vísað til starfsmanna umhverfis- og skipulagssviðs.
6.
Opinber heimsókn sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi
Sendiherra ESB á Íslandi kemur í heimdókn í sveitarfélagið 3.-4 nóvember 2021.
Lagt fram til kynningar.
7.
Tilnefning Vatnajökulsþjóðgarðs í Emerald Network
Lagt fram til kynningar.
8.
Útboð byggingar hjúkrunarheimilis
Þann 7. september 2021 voru opnuð tilboð vegna útboðs byggingar hjúkrunarheimilis á Höfn. Tvö tilboð bárust frá Húsheild ehf. upphæð 1.860.316.029 með VSK, Ístak hf. upphæð 2.139.877.154 með VSK. Kostnaðaráætlunin er ISK 1.569.969.725 með VSK og er lægra tilboð 18,5% yfir kostnaðaráætlun. Framkvæmdasýsla ríksins vinnur nú að því að rýna tilboðin og munu senda heilbrigðisráðuneytinu og sveitarfélaginu erindi þegar því er lokið.
9.
Fundargerð - stjórn samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram.
10.
Fundargerðir HAUST 2020 - 2021
Fundargerðin lögð fram.