Bæjarráð Hornafjarðar
1006. fundur
21. september 2021
kl.
14:30
-
16:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 82
Fundargerð samþykkt.
2.
Biðlisti á leikskóla
Minnisblað um biðlista á leikskóla lagt fram.
Átta börn eru nú þegar á biðlista eftir að komast á leikskóla, öll börnin eru orðin eins árs eða verða það nú í september (fædd 2020).
Átta börn eru nú þegar á biðlista eftir að komast á leikskóla, öll börnin eru orðin eins árs eða verða það nú í september (fædd 2020).
3.
Stofnun leikskóladeildar fyrir ungabörn
Vegna skorts á dagvistarplássum fyrir yngstu börnin er óskað eftir að stofnuð verði leikskóladeild fyrir ungabörn í Selinu við Víkurbraut 24, hægt er að samnýta leikskólagarðinn með Sjónarhóli og aðstöðu starfsmanna. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að komið verði upp leikskóladeild í Selinu til bráðabirgða meðan unnið er að framtíðarlausnum á leikskólavistun fyrir öll börn eins árs og eldri. Ljóst er að bæta þarf við starfsmönnum á leikskólann vegna þessa. Gera má ráð fyrir 2 starfsmönnum en það fer eftir fjölda barna auk þess sem huga þarf að búnaði á deildina.
Eftir þarfagreiningu sviðsstjóra velferðarsviðs kemur í ljós að mögulegt er að flytja núverandi starfsemi sem fram fer í Selinu inn í húsnæði velferðarsviðs að Víkurbraut 24 tímabundið. Þjónusta dagforeldra heyrir undir velferðarsvið, auglýst hefur verið eftir dagforeldrum án árangurs og því brýnt að leysa úr því ástandi sem hefur skapast.
Bæjarráð samþykkir að framlagða tillögu a.m.k. til áramóta.
Vísað til skoðunar hjá fjármálastjóra.
Bæjarráð samþykkir að framlagða tillögu a.m.k. til áramóta.
Vísað til skoðunar hjá fjármálastjóra.
4.
Kostnaður vegna sérfræðiþjónustu á fræðslu- og frístundasviði
Kostnaður við sérfræðiþjónustu hefur aukist umtalsvert óskar fræðslunefnd eftir auknu fé til að mæta þeim kostnaðarauka og aukaframlagi til þess að nýta þjónustu iðjuþjálfa.
Vísað til gerðar viðauka III.
5.
Iðjuþjálfun í skólum
Bæjarráð samþykkir að bæta við iðjuþjálfun í skólum sem tilraunaverkefni til áramóta.
6.
Fjárhagsáætlun 2022-2025
Ólöf gerði grein fyrir forsendum fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð samþykkir framlagðar forsendur.
7.
Staða sveitarsjóðs 2021
Fjármálastjóri fór yfir stöðu sveitarsjóðs.
Staða sveitarsjóðs er í jafnvægi.
Staða sveitarsjóðs er í jafnvægi.
8.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2021
Fjármálastjóri fór yfir viðauka III.
Bæjárráð samþykkir viðauka III og vísar honum til bæjarstjórnar.
Viðaukanum verður mætt með lækkun á handbæru fé.
Bæjárráð samþykkir viðauka III og vísar honum til bæjarstjórnar.
Viðaukanum verður mætt með lækkun á handbæru fé.
9.
Ósk um aukinn stuðning við Golfklúbb Hornafjarðar
Erindi frá Golfklúbbi Hornafjarðar þar sem óskað er eftir að styrkur eða stuðning við umhirðu og vallarumsjón verði aukinn.
Samningur við Golfklúbb Hornafjarðar er í gildi til ársloka 2022.
Beiðni um aukinn stuðning vísað til umræðu við gerð fjárhagsáætlunar 2022.
Beiðni um aukinn stuðning vísað til umræðu við gerð fjárhagsáætlunar 2022.
10.
Fjármálaráðstefna 2021
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem boðað er til fjármálaráðstefnu dagana 7. og 8. október
Lagt fram til kynningar.
11.
Ársfundur Jöfnunarsjóðs 6.okt 2021
Erindi frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem boðað er til ársfundar hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þann 6. október.
Bæjarstjóri verður fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum.
12.
Fundargerðir stjórnar Nýheima þekkingarseturs
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
13.
Umsókn um lóð - Heppuvegur 2b
Erindi frá eigendum Íshússins þar sem þau óska eftir að skila lóð að Heppuvegi 2 b.
Bæjarráð samþykkir að lóðinni verði skilað.
14.
Ósk eftir skilti við þjóðveg - Stórulág
Erindi frá Tinnu Rut Sigurðardóttur þar sem hún óskar eftir skilti við Stórulág 2 og lagfæringu á skilti við Stórulág þar sem heitið á bænum er rangt á skiltinu.
Vísað til vinnu starfsmanna.
15.
Íbúðarlóðir Hofi Öræfum, Borgartún
Bæjarstjóri hefur óskað eftir heimild frá landeigendum að úthluta þeim lóðum sem eftir eru berist beiðnir um slíkt. Niðurstaða liggur ekki fyrir.
Bæjarstjóra falið að ræða við landeigendur í samræmi við umræður á fundinum.
Bæjarstjóra falið að ræða við landeigendur í samræmi við umræður á fundinum.
16.
Framkvæmd - Hafnarbraut - endurbætur 2021 - Jarðvinna og lagnir
Staða framkvæmda varðandi framkvæmdir Hafnarbrautar og malbikun í þéttbýlinu.
Brynja Dögg fór yfir stöðu framkvæmda.