Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1007. fundur
28. september 2021 kl. 14:30 - 15:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Stuðningsverkefni vegna innleiðingar heimsmarkmiðanna í sveitarfélögum
Málsnúmer 202109069
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem kynnt er að sambandið hefur fengið styrk úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að styðja við innleiðingu heimsmarkmiðanna í sveitarfélögum á grundvelli verkfærakistu um heimsmarkmiðin fyrir sveitarfélögin sem kom út í maí 2020.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja um taka þátt í verkefninu.
Bæjarráð felur Ásgerði K. Gylfadóttur og Matthildi Ásmundardóttur að taka þátt í verkefninu.
2.
Ráðning mannauðs- og gæðastjóra
Málsnúmer 202108110
Bæjarstjóri greindi frá stöðu á ráðningaferli mannauðs- og gæðastjóra.
Ráðningu hefur verið frestað um óákveðinn tíma.
3.
Humarhátíð 2021
Málsnúmer 202101089
Farið yfir stöðu humarhátíðar 2021.
Bæjarráð óskar eftir að kostnaður vegna Humarhátíðarhelgarinnar verði sundurliðaður og óskar eftir kaupverði á samkomutjaldi.
4.
Heimsókn sveitarstjórnarmanna af Suðurlandi til Danmerkur 2020
Málsnúmer 202001027
Erindi frá Samtökum sveitarfélaga á Suðurlandi þar sem óskað er eftir staðfestingu á þátttöku sveitarstjórnarmanna á heimsókn til Danmerkur.
Lagt fram til kynningar.
5.
Umsögn um nýtt rekstrarleyfi - Hvammur
Málsnúmer 202108005
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstarleyfis fyrir Hvamm, gististað í flokki II-B stærra gistiheimili.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með sömu fyrirvrörum og byggingafulltrúi.
6.
Fundargerð - stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2021
Málsnúmer 202102014
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
7.
Umsögn um útgáfu leyfa - Sindrabær nýnemaball FAS
Málsnúmer 202109095
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir vegna tækifærisleyfis vegna nýnemaballs í Sindrabæ 7. október.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.