Bæjarráð Hornafjarðar
1010. fundur
19. október 2021
kl.
14:30
-
16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 8
Velferðarsvið hefur tekið til starfsa að Víkurbraut 24 þar sem verður opið hús 10. nóvember kl. 15:00-17:00.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Reglur um fjárhagsastoð
Tillaga er um að auka svigrúm til fjárhagsaðstoðar til að auka möguleika öryrkja til þátttöku í virkniúrræðum velferðarsviðs.
Bæjarráð samþykkir breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð.
3.
Ósk um rekstrarstyrk til Kvennaathvarfsins fyrir árið 2022
Umsókn um rekstarstyrk fyrir Kvennaathvarfið fyrir árið 2022.
Bæjarráð samþykkir að veittur verði rekstarstyrkur til Kvennaathvarfsins.
4.
Fyrirspurn um kaup á þjónustu
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu.
5.
Fjárhagsáætlun 2022-2025
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
6.
Kvísker
Lagt er til að gerður verið samningur við umhverfisráðuneytið þar sem farið verður í gegnum muni hússins og landeigendur fengnir til að segja frá munum og saga þeirra skráð. Heimilið á Kvískerjum stendur óbreytt frá því systkinin níu kvöddu það eitt af öðru. Í herbergjum hvers og eins er mikið safn persónulegra muna og í mörgum þeirra einnig rannsóknar- og vísindagögn. Í sameiginlegum vistarverum eru bókasöfn, munir og minjar daglegs lífs og fjölmargir listmunir og smíðisgripir systkinanna. Í útihúsum er gnótt áhalda og annarra muna frá langri sögu búsetu á Kvískerju.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að samningsgerð við umhverfisráðuneytið og landeigendur varðandi skráningu muna.
7.
Verkefnastjóri almannavarna
Erindi frá Lögreglustjóranum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir áframhaldandi samstarfi og ganga frá samningi við Almannavarnir í Árnessýslu um framhald á starfi verkefnastjóri almannavarna. Miðað er við að sveitarfélögin greiði inn í verkefnið kr. 200 per. íbúa. Verkefnið er búið að vera í gangi frá 2015 og hefur skilað góðum árangri.
Bæjarráð samþykkir áframhaldandi samstarf.
8.
Breyting á reglugerð vegna reikningsskila sveitarfélaga
Breytingar á reikningsskilum gætu átt við um Heilbrigðiseftirlitið og einnig um aðild að Landshlutasamtökum.
Lagt fram til kynningar.
9.
Uppsetning búnaðar til útsendinga útvarps í jarðgöngum o.fl.
Erindi frá Samgöngufélaginu þar sem óskað er eftir ef samstaða næst ætti það að auðvelda að knýja á um að gert verði ráð fyrir búnaði til útsendinga útvarps í þeim göngum þar sem hann er ekki að finna í t.d. næstu samgönguáætlun þótt ekki sé gert ráð fyrir honum í reglugerð.
Bæjarráð tekur undir áskorun um að búnaður til útsendinga útvarps verði settur upp í göngum.
10.
Hofgarður framkvæmd - endurbætur
Farið yfir minnisblað sviðstjóra fræðslu- og frístundasviðs þar sem er gerð grein fyrir mögulegum tímasetningum á vinnu við endurbætur á Hofgarði.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
11.
Útboð byggingar hjúkrunarheimilis
Bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu Framkvæmdasýslunnar við endurskoðun á kostnaðarþætti verkefnisins.
12.
Aðalfundur HAUST 2021
Fulltrúi sveitarfélagsins og bæjarstjóri fara með atkvæði sveitarfélagsins.