Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1011. fundur
26. október 2021 kl. 14:30 - 15:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 83
Málsnúmer 2110004F
Fundargerð samþykkt.
2.
Gjaldskrár fræðslu og tómstundasviðs
Málsnúmer 202110020
Fræðslu- og tómstundarnefnd leggur til 9% hækkun á leikskólagjöldum, á fæðisgjöldum í leiksskóla og fæði og vistunargjöldum í Kátakoti.Nefndin leggur til hækkun á fæði í grunnskólanum, fæði til nemenda fari í 360 krónur máltíðin og 600 krónur til starfsmanna.Nefndin leggur til 10% hækkun á gjaldskrá Vöruhúss auk þess sem 4 liðir hækka meira vegna aukins kostnaðar þar á bak við.Nefndin leggur til 5% hækkun Tónskólagjalda hjá börnum og 10% hækkun hjá fullorðnum.Nefndin leggur að jafnaði til 5 % hækkun á gjaldskrá sundlaugar en fer þó aðeins eftir liðum.
Bæjarráð samþykkir tillögu fræðslu- og tómstundanefndar og vísar gjaldskrárhækkunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Sæmundur Helgason leggur fram eftirfarandi bókun.
"Fulltrúi 3. Framboðsins leggst gegn tillögum um hækkun leikskólagjalda. Nær væri að stíga það skref að fella niður leikskólagjöld, enda standa þau undir mjög litlum hluta kostnaðar við rekstur."
3.
Fjárhagsáætlun 2022-2025
Málsnúmer 202108093
Bæjarráð samþykkir álagningareglur óbreyttar frá fyrra ári og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fjárhagsáætlun vísað til fyrri umræðu bæjarstjórnar.
4.
Gamlabúð rekstur upplýsingamiðstöðvar
5.
Persónuverndarstefna
Málsnúmer 202110074
Ný og breytt persónuverndarstefna í stefnu þessari er því lýst hvernig Sveitarfélagið Hornafjörður vinnur með persónuupplýsingar. Öll vinnsla sveitarfélagsins á persónuupplýsingum fer fram á grundvelli laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Bæjarráð samþykkir persónuverndarstefnuna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstórnar.
6.
Landskipti - Flatey
Málsnúmer 202107013
Vísað til afgreiðlsu bæjarstjórnar.
7.
Umsókn um lóð - Hagaleira 1
Málsnúmer 202110068
Umsókn Skinney Þinganes hf. um lóð að Hagaleiru 1, óskað er eftir stækkun á lóðinni svo mögulegt sé að byggja raðhús.
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
8.
Fundargerðir stjórnar Nýheima þekkingarseturs
Málsnúmer 202101051
Fundargerðin lögð fram.