Bæjarráð Hornafjarðar
1012. fundur
2. nóvember 2021
kl.
14:30
-
15:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 32
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 239
Fundargerð samþykkt.
3.
Álagningarreglur 2022
Tillaga að álagningarreglum 2022Útsvar14,52% Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði0,41% af fasteignamati (hámark 0,625%) Fasteignaskattur á opinb. húsnæði1,32%Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði1,49% af fasteignamati (hámark 1,65%)Lóðarleiga 1% af lóðarmatiHolræsagjaldSamkvæmt gjaldskrá (var 0,30% af fasteignamati)Vatnsgjald Samkvæmt gjaldskrá (var 0,15% af fasteignamati)Sorpgjöld samkvæmt gjaldskrá
Bæjarráð samþykkir að vísa álagningareglunum til bæjarstjórnar.
4.
Kvísker
Markmið samningsins er að Menningarmiðstöð Hornafjarðar vinni að skrásetningu, flokkun og varðveislu minja á Kvískerjum í samræmi við verkefnislýsingu sem er viðauki við samninginn. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið greiðir alls 12. m.kr. vegna verkefnisins.
Bæjarráð samþykkir samninginn með fyrirvara um samþykki landeigenda.
5.
Ágóðahlutagreiðsla 2021
Á síðasta aðalfundi fulltrúaráðs EBÍ var samþykkt að áfram skuli hagnaður af starfsemi félagsins greiddur út til aðildarsveitarfélga í formi ágóðahlutar. Hlutdeild sveitarfélagsins í Sameignarsjóði EBÍ er 1,608% og er greiðsla ársins hlutfall af 90 m.kr. 1.447.200 kr.
Lagt fram til kynningar.
6.
Starfsmannahandbók
Í dag er unnið skv. starfsmannastefnu frá árinu 2015. Undirstofnanir sveitarfélgsins vinna eftir mismunandi starfsmannahandbókum s.s. starfsmannalykill Grunnskóla Hornafjarðar.
Bæjarráð telur nauðsynlegt að yfirfara og samræma þær stefnur og ferla sem unnið er eftir í starfsmannamálum sveitarfélagsins og felur starfsmönnum að hefja vinnu að uppfærðri starfsmannahandbók fyrir allar starfsstöðvar sveitarfélagsins.
7.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Lagt fram til kynningar.
8.
Ósk um tilnefningu - Innleiðing laga um þjónustu í þágu farsældar barna.
Erindi frá félgasmála- og barnamálaráðuneytinu þar sem tryggja á nauðsynlega aðkomu sveitarfélaga að innleiðingu laganna á öllum stigum óskar félags- og barnamálaráðherra eftir því að hvert sveitarfélag tilnefni sérstakan fulltrúa innleiðingar. Viðkomandi aðili verður tengiliður sveitarfélagsins við ráðuneytið og alla þá aðila og hópa sem verkefninu tengjast.
Bæjarráð tilnefnir Erlu B. Sigurðardóttur sem tengilið við ráðuneytið.
9.
Útboð byggingar hjúkrunarheimilis
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála.
Enn er verið að vinna að málinu út frá þeim tilboðum sem bárust í verkið.
Enn er verið að vinna að málinu út frá þeim tilboðum sem bárust í verkið.