Bæjarráð Hornafjarðar
1013. fundur
9. nóvember 2021
kl.
12:00
-
16:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Almannavarnanefnd - 64
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 29
Fundargerð samþykkt.
3.
Lóðarúrdráttur - Hagaleira 1
Anna Lilja Ragnarsdóttir fulltrúi Sýslumanns stýrði úrdrætti lóðar við Hagaleiru 1. Tvær umsóknir bárust. Umsækjendur eru: Þingey ehf. (Guðrún Ingólfsdóttir viðstödd) og Skúli Ingólfsson - (viðstaddur ásamt Guðbjörgu Ómarsdóttur).
Páll Róbert Matthíasson dró út lóðarumsækjanda og var Skúli Ingólfsson dreginn út.
Bæjarráð samþykkir að vísa lóðarúthlutuninni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir að vísa lóðarúthlutuninni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Sveitastjórnarráðuneytið er enn með málið í skoðun og mun svar liggja fyrir í síðasta lagi á fimmtudaginn í þessari viku. Starfsmenn vinna áfram að skipulagi kosninga.
5.
Verkefni - Innleiðing hringrásarkerfis
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem hvatt er til að sveitarstjórnir um allt land hefji nú þegar undirbúning fyrir gildistöku lagabreytinga um hringrásarhagkerfið sem taka gildi 1. janúar 2023.
Undirbúningur er nú þegar hafinn hjá sveitarfélaginu. Vinna við svæðisáætlun er að hefjast ásamt því að kortlagning stendur nú yfir á úrgangsstraumum sveitarfélagsins. Jafnframt er undirbúningur að hefjast vegna útboðs á sorpmálum í samstarfi við önnur sveitarfélög sem jafnframt eru í sömu sporum.
6.
Loftslagsvernd í verki
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um boð á námskeiðið Loftlagsvernd í verki fyrir starfsmenn og kjörna fulltrúa sveitarfélaga.
Málinu vísað til Umhverfis- og skipulagsnefndar.
7.
Framkvæmd göngu og hjólastígur Svínafell - Skaftafell
Fyrir fundinum liggja tilboð vegna verðfyrirspurnar í göngu- og hjólastíg milli Svínafells og Skaftafells.
Verðkönnun hefur farið fram vegna framkvæmdar við göngu- og hjólastígs milli Svínafells og Skaftafells.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
8.
Sala íbúða í eigu sveitarfélagsins
Bæjarráð felur bæjarstjóra að rýna biðlista eftir félagslegu húsnæði með starfsmönnum velferðarsviðs með tilliti til þess að setja fleiri íbúðir í söluferli.
9.
Árshátíð starfsmanna sveitarfélagsins 2020
Nú hafa tekið gildi nýjar sóttvarnarreglur vegna aukins fjölda smita. Jafnframt er langt liðið á árið og farið að líða að jólum, því skammur tími til að halda árshátíð.
Bæjarráð samþykkir að veita fjárheimild vegna árshátíðar starfsmanna renni til stofnana sveitarfélagsins í starfsmannasjóði í hlutfalli við stöðugildi.
10.
Vöruhús - bæta við hálfu stöðugildi
Leitað eftir heimild bæjarráðs til að nýta styrkveitingu ríkisins til reksturs Fab Lab smiðjunnar til bæta við 50% stöðugildi umfram það sem nú er. Gert hefur verið ráð fyrir tilfærslu í fjárhagsáætlun 2022.
Bæjarráð samþykkir að bæta við hálfu stöðugildi í Fab Lab smiðjuna.
11.
Boð á barnaþing 18.-19. nóvember
Erindi frá Umboðsmanni barna þar sem boðað er til Barnaþings dagana 18. og 19. nóvember. Óskað er eftir þátttöku fulltrúa sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að ungmennaráð sendi fulltrúa á barnaþing verði af þinginu sökum Covid.
12.
Ályktun bæjarráðs Árborgar um leikskólamál
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem vakin er athygli á bókun bæjaráðs Árborgar um leikskólamál. Stjórn sambandsins tekur undir bókun bæjarráðs Árborgar og leggur áherslu á að teknar verði upp viðræður milli ríkis og sveitarfélaga um fjármögnun leikskóladvalar að fæðingarorlofi loknu eftir tólf mánuði.
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð Hornafjarðar fagnar allri umræðu um styrkingu tekjustofna sveitarfélaga.
Bæjarráð Hornafjarðar fagnar allri umræðu um styrkingu tekjustofna sveitarfélaga.
13.
Umsókn um lóð - Hafnarbraut 6
Umsókn Gunnars Ásgeirssonar um lóð að Hafnarbraut 6.
Bæjarráð mælir með lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
14.
Landeignaskrá - Skaftafell III og IV - Landskipti, breyting á afmörkun innbyrðis
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
15.
Landeignaskrá - Háhóll og Hólanes, samruni landeigna, stofnun lögbýlis
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
16.
Umsögn um drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu, S 1842021
Markmið með reglugerð þessari er að tryggja sjálfbæra landnýtingu í samræmi við markmið laga nr. 155/2018 um landgræðslu. Reglugerðin er inn í samráðsgátt stjórnvalda og er umsagnafrestur til 11.11.2021.
Bæjarráð tekur undir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga og felur bæjarstjóra að senda umsögn inn á samráðsgátt stjórnvalda.
17.
Fundargerð - stjórn samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
18.
Fundargerð - stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2021
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
19.
Umsókn um lóð - Hraunhóll 1
Verkfærni ehf. sækir um lóð - Hraunhóll 1.
Bæjarráð mælir með lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
20.
Tilkynning um framkvæmd - Heppuvegur 2a, viðbygging við Íshúsið
Bæjarráð samþykkir staðsetningu á fituskilju vestast á lóðinni Verðanda og að sett verði kvöð á lóð Verðanda.
21.
Umsókn um lóð - Júllatún 10
Sævar Knútur Hannesson og Siggerður Aðalsteinsdóttir sækja um lóð Júllatún 10.
Bæjarráð mælir með lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.