Bæjarráð Hornafjarðar
1014. fundur
16. nóvember 2021
kl.
12:00
-
13:05
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2022-2025
Fundur um fjárhagsáætlun verður haldin á Teams Meating 25. nóvember kl. 20. Íbúar eru hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér rekstur sveitarfélagsins.
2.
Stofnun þjónustusláturhúss og matarsmiðju
Erindi frá Sláturfélagi Austur-Skaftafellssýslu ehf. þar sem óskað er eftir að sú fjárhæð sem sveitarfélagið fær í sinn hlut við slit á Sláturfélagi Búa svf. renni til stofnunar þjónustusláturuhúss og matarsmiðju og haldist þannig í þjónustu við bændur.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skoða mögulegar útfærslur á þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu.
3.
Framkvæmd - göngu og hjólastígur Svínafell - Skaftafell
Björgvin Ó. Sigurjónsson vék af fundið við afgreiðslu þessa máls.
Eftir yfirferð og samræður við bjóðendur er lagt til að taka tilboði Jökulfells að fjárhæð 38.155.500 kr.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Jökulfells.
Eftir yfirferð og samræður við bjóðendur er lagt til að taka tilboði Jökulfells að fjárhæð 38.155.500 kr.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Jökulfells.
4.
Úttekt á starfsemi - Slökkvilið Hornafjarðar
Húsnæðis og mannvirkjastofnun framkvæmdi úttekt á Slökkviliði Hornafjarðar 18. október sl.
Niðurstaða og leiðbeiningar um þau atriði sem þarfnast úrbóta. HMS leggur til að ráðist verði í nauðsynlegar úrbætur og er þess farið á leit við sveitarstjórn að HMS berist áætlun um úrbætur við athugasemdum stofnunarinnar.
Vísað til slökkviliðsstjóra og skipulagsstjóra að vinna tillögur að úrbótum, kostnaðarmeta og útbúa aðgerðaáætlun.
Vísað til slökkviliðsstjóra og skipulagsstjóra að vinna tillögur að úrbótum, kostnaðarmeta og útbúa aðgerðaáætlun.
5.
Umsókn um lóð - Álaleira 6
Erindi frá Finni Á. Óskarssyni þar sem hann óskar eftir framlengingu á frest venga tafa á afhendingu á húsi sem reisa á á Álaleiru 6. Um er að ræða iðnaðarlóð.Óskað er eftir fresti á til 10. maí.
Bæjarráð samþykkir frest til 10. maí nk.
6.
Umsögn um útgáfu leyfa - Skýjaborg apartments
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstarleyfis fyrir rekstur gististaðar í flokki II G íbúðir, fyrir Skýjaborgir Víkurbraut 2.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.