Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1016. fundur
30. nóvember 2021 kl. 14:30 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 9
Málsnúmer 2110010F
Fundargerð samþykkt.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 33
Málsnúmer 2111013F
Fundargerð samþykkt.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 242
Málsnúmer 2111011F
Fundargerð samþykkt.
4.
Fjárbeiðni og rekstrarstyrkur Stígamóta 2021
Málsnúmer 202111041
Sveitarfélaginu hefur borist árleg ósk Stígamóta eftir fjárstuðningi og samstarfi um rekstur starfseminnar. Öll þjónusta Stígamóta við brotaþola er ókeypis og samtökin sinna allri landsbyggðinni. Velferðarnefnd lagði til að gera styrktarsamning við Stígamót til þriggja ára.
Bæjarráð samþykkir að gera þriggja ára styrktarsamning við Stígamót og starfsmönnum falið að gera samning.
5.
Opið bréf til bæjarstjórnar Framkvæmdir við Tónskólann
Málsnúmer 202111096
Bréfið er sent af kennurum Tónskólans sem óska þess að bæjarstjórn endurskoði fjárhagsáætlun sína og komi viðhaldi og endurbótum á Sindrabæ framar á dagskrá. Í bréfinu er vitnað í fundargerð bæjarstjórnar þar sem fjárhagsáætlun 2022-2025 var vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn þar sem kom fram að endurbætur á Sindrabæ eru áætlun á árunum 2023-2025.
Bæjarráð þakkar fyrir bréfið. Endurbætur og framkvæmdir við Sindrabær voru boðnar út fyrr á þessu ári og barst eitt tilboð í verkið sem var langt yfir kostnaðaráætlun og var því hafnað. Við gerð fjárhagsáætlunar 2022-2025 lá fyrir að skera þyrfti niður í fjárfestingum vegna áskorana í rekstri sveitarfélagsins. Myndist svigrúm til aukinna framkvæmda þarf stuttan undirbúning til að setja verkið af stað þar sem úboðsgögn eru tilbúin.
6.
Ósk um skýli fyrir reiðhjól við Nýheima
Málsnúmer 202111107
Lögð fram ósk um samstarf um kaup á hjólaskýli sem gæti nýst Nýheimum, ráðhúsi og framhaldsskólanum.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og bæjarstjóra falið að vinna að málinu í samstarfi við FAS m.a. hvað varðar kostnaðarskiptingu.
7.
Umsókn um um styrk
Málsnúmer 202105075
Ríki Vatnajökuls sækir um að fjárstyrkur að upphæð 2.450.000 kr. verði fluttur yfir til næsta árs, 2022 þar sem seinkun var á verkefninu.
Bæjarráð samþykkir að flytja styrkinn til ársins 2022 og vísar því fjárhagsáætlunar 2022, síðari umræðu.
8.
Fundargerðir stjórnar SASS
Málsnúmer 202002002
Lagt fram til kynningar.