Bæjarráð Hornafjarðar
1030. fundur
15. mars 2022
kl.
14:30
-
15:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 12
Fundargerð samþykkt.
2.
Breyting á deiliskipulagi Hafnarvík - Heppa
Umræður um deiliskipulag að Hafnarvík Heppu.
3.
Reglur og gjaldskrá um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagins
Starfsmönnum falið að kanna raunkostnað við útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins og vinna að tillögu að breytingu á gjaldskrá.
4.
Fasteignir / viðhaldsáætlun fasteigna sveitarfélagsins
Björgvin Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Gögn tilbúin vegna verðkönnunar fyrir hitaveitu innleiðingu á Silfurbraut 2-4.
Bæjarráð samþykkir að fara verði í verðkönnun fyrir hitaveituinnleiðingu á Silfurbraut 2-4 samkvæmt framlögðum gögnum.
5.
Frumvarp - Breyting á sveitarstjórnarlögum nr.1382011
Neðangreint er umsögn sem bæjarstjóri setti inn á samráðsgáttina en umsagnarfrestur er 15.3.2022. Sveitarfélagið Hornafjörður hefur verið að undirbúa íbúakosningar skv. 108 gr. sveitarstjórnarlaga eftir að íbúar kröfðust þess með undirritun undirskriftalista. Til stóð að framkvæma rafrænar íbúakosningar sem gekk ekki þar sem ekkert kosningakerfi er til staðar í landinu sem uppfyllir öryggiskröfur. Ekkert er fjallað um kosningakerfi í frumvarpinu þó komið sé inn á það í greinargerðinni. Ráðuneytið og/eða Þjóðskrá Íslands þarf að tryggja nothæft kosningakerfi þannig að sveitarfélög geti með góðu móti framkvæmt rafrænar íbúakosningar sem uppfylla lagaskilyrðin.
Lagt fram til kynningar.
6.
Umsögn - Frumvarp til laga um fjöleignarhús (gæludýrahald), 57.mál.
Lagt fram til kynningar.
7.
Umsókn um lóð - Álaleira 15
Lóðarhafi hefur ákveðið að skila inn lóðinni að Álaleiru 15. Lóðin er því laus til úthlutunar.
Bæjarráð felur starfsmönnum að auglýsa lóðina.
8.
Fundargerðir stjórnar Nýheima Þekkingarseturs
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
9.
Fundargerð - stjórn sunnlenskra sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram til kynningar.