Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1032. fundur
29. mars 2022 kl. 14:30 - 16:05
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 38
Málsnúmer 2203009F
Fundargerð samþykkt.
2.
Leiðarhöfði - Hönnunarsamkeppni
Málsnúmer 202104018
Sæmundur og Björgvin kynntu hönnunarsamkeppni Leiðarhöfða fyrir bæjarráði.
Niðurstaða hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun á opnu svæði við Leiðarhöfða á Höfn verður kynnt við hátíðlega athöfn 6. apríl kl. 16:00 í Nýheimum.
3.
Stjórnsýsluúttekt 2021
Málsnúmer 202203084
KPMG framkvæmir stjórnsýsluúttekt samhliða endurskoðun ársreiknings árlega. Stjórnsýsluúttekt fyrir árið 2021 er lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
4.
Umferðaröryggi - Bílar á Kirkjubraut
Málsnúmer 202203070
Erindi frá Lilju Rós Aðalsteinsdóttur þar sem bent er á að lagt er úti á götu á Kirkjubraut og Dalbraut.
Vísað til umhverfis- og skipulagnefndar við gerð umferðaröryggisáætlunar.
5.
Starfsmannamál Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 202203082
Sæmundur Helgason vék af fundi undir þessu máli. Bæjarstjóri kynnti stöðu mála.
Lagt fram til kynningar.
6.
Fyrirhugað sorpútboð 2022
Málsnúmer 202108112
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
7.
Húsnæðismál Vatnajökulsþjóðgarðs - ósk um samstarf
Málsnúmer 202112075
Þjóðgarðurinn og sveitarfélagið hafa gert með sér samstarfsyfirlýsingu þar sem markmiðið er að vinna að lausn húsnæðismála fyrir starfsfólk þjóðgarðsins á Höfn, uppbygging skrifstofuhúsnæðis sem uppfyllir þarfir þjóðgarðsins. Lögð er fram tillaga að erindi til ráðuneytis þar sem lagt er til samstarf um endurbætur í Miklagarði.Jafnframt er kynnt erindi sem var sent Bríet leigufélagi varðandi uppbyggingu starfsmannhúsnæðis í Skaftafelli. Erindið fékk umfjöllun hjá stjórn Bríetar og því hafnað.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að senda umhverfisráðuneytinu erindi um samstarf um endurbætur á Miklagarði.
8.
Uppbygging íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu
Málsnúmer 202203089
Bæjarstjóri gerði grein fyrir skorti á leiguhúsnæði í dreifbýli.
Bæjarstjóra falið að leita til leigufélagsins Bríet um uppbyggingu á húsnæði í dreifbýli.
9.
Styrktarsjóður EBÍ 2022
Málsnúmer 202203083
Erindi frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands þar sem bent er á að umsóknir eru opnar vegna sérstakra framfaraverkefna á vegum sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.