Bæjarráð Hornafjarðar
1033. fundur
5. apríl 2022
kl.
14:30
-
16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 245
Fundargerð samþykkt.
2.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2021
Sigurjón Arnarson fulltrúi endurskoðenda sveitarfélagsins frá KPMG fór yfir Ársreikning Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2020 og drög að skýrslu endurskoðenda.
Bæjarráð samþykkir ársreikning sveitarfélagsins 2021 og vísar honum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
3.
Jafnlaunastefna
Ný jafnlaunastefna lögð fram til samþykktar.
Jafnlaunastefna er samþykkt og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Nýr slökkvibíll - útboð
Taka þarf ákvörðun um tilboð í nýjan slökkvibíl.
Bæjarráð samþykkir kaup á nýjum slökkvibíl skv. útboði Ríkiskaupa sem stefnt er að afhenda í lok árs 2023. Slökkvibíllinn kostar 91 m.kr. skv. gengi evrunnar við opnun tilboðs. Upphæðin kemur til greiðslu árin 2023 og 2024.
Vísað til gerð fjárhagsáætlunar 2023.
Vísað til gerð fjárhagsáætlunar 2023.
5.
Hönnun og útboð, fráveita áfangi 3.b
Björgvin Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið.
Kostnaðaráætlun vegna framkvæmda við fráveitu áfangi 3b liggur nú fyrir. Útboðsgögn eru tilbúin.
Bæjarráð felur starfsmönnum að bjóða framkvæmdina út.
Bæjarráð felur starfsmönnum að bjóða framkvæmdina út.
6.
Verkefni - Römpum upp Ísland
Erindi frá Römpum Ísland þar sem átaksverkefnið að setja rampa fyrir hjólastóla á sem flesta staði á Íslandi.
Bæjarráð þakkar erindið og samþykkir að taka þátt í verkefninu.
7.
Viðmiðunarreglur - Framlag til stjórnmálaflokka
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem bent er á að stjórn sambandsins hefur sett viðmiðunarreglur fyrir framlag til stjórnmálaflokka.
Lagt fram til kynningar.
8.
Samningur um tímabundið lóðarvilyrði - Ósland C, D, E, F, G, H (Sandeyri 2 til 6)
Beiðni um framlengingu lóðarvilyrðis lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að framlengja lóðarvilyrðið um 2 mánuði. Jafnframt er óskað eftir staðfestingu á fjármögnun verkefnisins og upplýsingum um samstarfsaðila.
9.
Stefna Ice Lagoon ehf: Athafnir sveitarfélagsins 2010 til 2017
Árni Helgason lögfræðingur sveitarfélagsins í málinu fór yfir niðurstöðu Landsréttar. Ice Lagoon ehf höfðaði mál á hendur sveitarfélagsins og krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu sveitarfélagsins vegna ætlaðs tjóns á ferðaþjónustustarfsemi fyrirtækisins við austurbakka Jökulsárlóns í landi jarðarinnar Fells vegna ákvarðana sveitarfélagsins 20. maí 2010, 27. janúar og 15. ágúst 2014 og 10. mars 2015.
Niðurstaða Landsréttar var að hluti krafna ákærenda á hendur Sveitarfélaginu Hornafjarðar var vísað frá og sveitarfélagið sýknað af öðrum kröfum.
10.
Sýslumannsembætti - Endurskipulagning
Lagt fram bréf frá dómsmálaráðherra þar sem áform um endurskipulagningu sýslumannsembætta eru kynnt.
Bæjarráð harmar fækkun lykilstjórnenda á vegum ríkisins á landsbyggðinni sbr. meðfylgjandi bréf og leggur áherslu á að nái breytingin fram að ganga verði sýslumaður fyrir allt landið staðsettur á landsbyggðinni.
Sveitarfélagið hefur átt gott samstarf við Sýslumanninn á Suðurlandi m.a. í því að þrýsta á fjölgun verkefna sýsluskrifstofunnar á Höfn. Það hefur enn ekki borið árangur. Áform dómsmálaráðuneytisins um að efla sýsluskrifstofur, meðal annars með aukinni áherslu á starfræna þjónustu, fjölgun verkefna um allt land og auknu samstarfi við sveitarfélögin, eru jákvæð og býður upp á eflingu starfsstöðva svo sem á Höfn. Bæjarráð leggur áherslu á að sérfræðistörfum fækki ekki á landsbyggðinni og þjónusta við íbúann skerðist ekki heldur eflist enn frekar.
Sveitarfélagið hefur átt gott samstarf við Sýslumanninn á Suðurlandi m.a. í því að þrýsta á fjölgun verkefna sýsluskrifstofunnar á Höfn. Það hefur enn ekki borið árangur. Áform dómsmálaráðuneytisins um að efla sýsluskrifstofur, meðal annars með aukinni áherslu á starfræna þjónustu, fjölgun verkefna um allt land og auknu samstarfi við sveitarfélögin, eru jákvæð og býður upp á eflingu starfsstöðva svo sem á Höfn. Bæjarráð leggur áherslu á að sérfræðistörfum fækki ekki á landsbyggðinni og þjónusta við íbúann skerðist ekki heldur eflist enn frekar.
11.
Stöðuleyfisumsókn - Matarvagn plan Hafnarbraut 38
Ladislav Skala óskar eftir stöðuleyfi fyrir matarvagn óskar eftir leyfi til að færa matarvagn frá bílastæði við Hafnarbraut 38 á svæði við sundlaug og klára leyfi á nýju svæði.
Bæjarráð frestar afgreiðslu og óskar eftir frekari upplýsingum.
12.
Umsókn um lóð - Bíóbraggi, Heppa
Umsókn Íshússins ehf. um lóð á Heppu sem kölluð er Bíóbraggi.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
13.
Umsókn um lóð - Álaleira 15
Umsókn Hjördísar Eddu Olgeirsdóttur um lóð Álaleira 15.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
14.
Umsögn um útgáfu leyfa - Kútmagakvöld Sindrabær
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi og tímabundið áfengisleyfi vegna Kútmagakvölds Lionsklúbbs Hornafjarðar.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með fyrirvara um umsögn eldvarnafulltrúa.
15.
Fundargerðir stjórnar Nýheima Þekkingarseturs
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
16.
Fundargerð - stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram.