Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1034. fundur
12. apríl 2022 kl. 12:00 - 14:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir 1. varamaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 35
Málsnúmer 2204001F
Fundargerð samþykkt.
2.
Sveitarstjórnarkosningar 2022
Málsnúmer 202204040
Yfirkjörstjórn gerði grein fyrir vandamáli við að manna kjörstaði vegna nýrra kosningalaga nr.112/2021 varðandi hæfisreglna kjörstjórna.
Bæjarráð og yfirkjörstjórn samþykkja að auglýsa eftir starfsmönnum á kjörstaði í sveitarfélaginu.
Staðan verður tekin 20. apríl nk. hvort hægt verði að manna kjörstaði eða hvort þurfi að fækka þeim.
3.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Málsnúmer 202110040
Íbúakosning verður haldinn samhliða sveitarstjórnarkosningum og verður kosið um aðal- og deiliskipulag innbæ.
Bæjarráð vekur athygli á að hægt er að kjósa utankjörfundar hjá Sýslumanni samhliða sveitarstjórnarkosningum 14. maí 2022.
Sæmundur Helgason lagði fram eftirfarandi bókun.
"Sæmundur Helgason áréttar að auglýsingu frá sveitarfélaginu um íbúakosningu um aðal- og deiliskipulag um þéttingu byggðar innbæ, sem fram kom í Eystrahorni 7. apríl 2022 og á vef Sveitarfélagsins Hornafjarðar er efnislega röng. Þar kemur fram að nýja aðal- og deiliskipulagstillagan hafi verið samþykkt af bæjarstjórn sveitarfélagsins. Þetta er ekki allskostar rétt, því að það var meirihluti framsóknarflokks í bæjarstjórn sem samþykkti tillögurnar. Sæmundur Helgason, fulltrúi 3.framboðsins var andvígur tillögunni eins og hún var lögð fyrir og Páll Róbert Matthíasson og Stefanía Anna Sigurjónsdóttir, fulltrúar D-lista sátu hjá."
Bókun meirihluta bæjarráðs.
"Meirihluta bæjarráðs furðar sig á bókun bæjarfulltrúans Sæmundar Helgasonar þar sem setningin sem hann gerir athugasemd við hefur nokkrum sinnum verið bókuð í bæjarstjórn án skriflegra athugasemda hans, nú seinast 10. mars s.l. Fullyrðing um að setningin sé efnislega röng stenst ekki þar sem samþykki í bæjarstjórn er jafngilt hvort sem er með meirihluta atkvæða eða samhljóða með öllum greiddum atkvæðum. En gerð er nákvæm grein fyrir atkvæðum bæjarfulltrúa í fundargerðum bæjarstjórnar. Því þykir meirihluta bæjarráðs það skjóta skökku við að bæjarfulltrúinn bóki með þessum hætti og geri með því störf starfsmanna við upplýsingagjöf tortryggileg þar sem kjörnir fulltrúar koma ekki að slíkum málum líkt og bæjarfulltrúanum ætti að vera full kunnugt um."
4.
Kjörskrá 2022
Málsnúmer 202204041
Kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar 14. maí lögð fram.
Kjörskráin verður til sýnis í afgreiðslu Ráðhúss á opnunartíma afgreiðslu og Svavarssafns.
5.
Áskorun - Nýtt hjúkrunarheimili
Málsnúmer 202204006
Ályktun frá Félagi eldri Hornfirðinga þar sem skorað er á heilbrigðisráðherra og bæjarstjórn að ljúka tafarlaust útboðsferli og hefja nýja byggingu á húsnæði við hjúkrunarheimilioð Skjólgarð sem fyrst.
Bæjarráð deilir áhyggjum Félags eldri Hornfirðinga um seinagang í málinu. Ekki hefur staðið á bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar þar sem sveitarfélagið er ekki beinn aðili að útboðsferlinu sem slíku en hefur í samskiptum við FSRE þrýst á að framkvæmdir hefðust sem fyrst.
Bæjarráð óskar eftir fundi með Framkvæmdasýslu ríkisins til þess að fá útskýringar á þessum seinagangi.
6.
Augnlæknir - Þjónusta í heimabyggð
Málsnúmer 202204005
Ályktun frá Félagi eldri Hornfirðinga þar sem því er beint til Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands að tryggja þjónustu auglækna á heilsugæslunni Höfn.
Bæjarráð tekur undir ályktun FeH að tryggja þarf þjónustu augnlækna í sveitarfélaginu. Forstjóri HSU hefur svarað ályktuninni á þann hátt að verið að þróa fjaraugnlækningar á landsbyggðinni sem vonandi getur nýst Hornfirðingum í framtíðinni.
7.
Tilfærsla - Fasteignaskrá frá þjóðskrá til húsnæðis og mannvirkjast.
Málsnúmer 202204020
Erindi frá innviðarráðuneytinu þar sem óskað er eftir umsögn við drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum vegna tilfærslu fasteignaskrár frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Lagt fram til kynningar.
8.
Innleiðing- Barnaverndarlög
Málsnúmer 202204018
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem tilkynnt er að breytingar á barnaverndarlögum hefur verið frestað til a.m.k til haustsins. Breytingarnar fela í sér að settar verði á fót stjórnsýslunefndir sem fara með úrskurði í barnaverndarmálum.
Lagt fram til kynningar.
9.
Lausaganga hunda við Laxá
Málsnúmer 202204029
Erindi frá Sigfinni Mar Þrúðmarsyni þar sem hann kvartar vegna lausagöngu hunda við Laxá og bendir á að töluverð umferð sé á svæðinu bæði vinnuvélar og stór ökutæki.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og vísar því til starfsmanna til úrvinnslu.
Bæjarráð bendir á að lausaganga hunda í þéttbýli er leyfði í Lyngey.
10.
Umsögn - Frumvarp til laga um fjarskipti
Málsnúmer 202204017
Erindi frá Alþingi þar sem óskað er eftir umsögn við frumvarpi til laga um fjarskipti.
Lagt fram til kynningar.
11.
Umsókn um lóð - Júllatún 10
Málsnúmer 202203030
Lóðarhafa að lóð Júllatún 10 óska eftir að skila lóðinni.
Bæjarráð samþykkir lóðarskilin og felur starfsmönnum að auglýsa lóðina.
12.
Umsókn um lóð - Júllatún 8
Málsnúmer 202202093
Lóðarhafa að lóð Júllatún 8 óska eftir að skila lóðinni.
Bæjarráð samþykkir lóðarskilin og felur starfsmönnum að auglýsa lóðina.
13.
Fundargerð - stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202203039
Fundargerðin lögð fram til kynningar.