Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1035. fundur
22. apríl 2022 kl. 09:00 - 10:45
Teams Meeting
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Örútboð vegna reksturs tölvuþjónustu
Málsnúmer 202202106
Tilboð voru opnuð þann 22. apríl sl.Innifalið í örútboði er að samið er til 36 mánaða og heimild til framlengingar 2x1 ár. Alls bárust sex tilboð frá fimm bjóðendum. Kostnaðaráætlun verkkaupa var 35.500.000 kr. Tilboðin innifela stofnkostnað við uppsetningu lausnarinnar hjá verksala og þriggja ára rekstur í samræmi við lýsingar örútboðsgagna. Tilboðsgjafa voru Advanía 33.282.324 kr. Advania 28.352.124 kr. Opin kerfi 55.850.524 kr. Origo 58.912.280 kr. TRS ehf. 36.019.684 kr. Þekking Tristan hf. 35.470.368 kr.Búið er að fara yfir tilboðin og hefur tilboð Advania verið metið hagstæðast. Samkvæmt útboðsgögnum tekur nýr aðili við rekstri tölvukerfis sveitarfélagsins 1. júlí nk.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Advania.
2.
Útboð byggingar hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 202109040
Bæjarráð óskaði eftir fundi með Framkvæmdasýslu ríkisins til þess að fá útskýringar á þeim seinagangi á útboði byggingar hjúkrunarheimilis.
Starfsmenn Framkvæmdasýslu ríkisins gerðu grein fyrir stöðu mála við útboð á nýju hjúkrunarheimili.
Kom þar fram að kostnaðaráætlun hefur hækkað vegna breytinga á aðföngum, fjárheimildir FSRE eru ekki nægar og ríkið þarf að gefa heimild til að auka við fjárheimildir og er vinna í gangi við að sækja þá heimild.
Lagt er til að starfshópur verði virkjaður til þess að miðla upplýsingum í málinu. Framkvæmdasýslan mun vera í sambandi við bæjarráð síðar í dag.
3.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Málsnúmer 202110040
Kolbrún Garðarsdóttir hefur sent Landskjörstjórnar og sveitarfélaginu erindi þar sem vakin athygli á því að framkvæmd og framsetning vegna íbúakosningar á Hornafirði er ólögmæt.Kjósendur fá í hendur auðan kjörseðil og hafa möguleika á að stimpla á kjörseðilinn annað hvort Já eða Nei.Spurningar til kjósenda er eftirfarandi og virðist gert ráð fyrir því að kjósandi svari annarri hvorri spurningunni játandi eða neitandi.Vilt þú að þetta nýja aðal- og deiliskipulag haldi gildi sínu með þeim breytingum sem því fylgja, eða vilt þú að það falli úr gildi og þar með verði skipulag óbreytt á svæðinu?Ég vil að nýtt aðal- og deiliskipulag haldi gildi sínu.Ég vil að nýtt aðal- og deiliskipulag falli úr gildi.Ef kjósandi svarar báðum spurningum játandi með því að stimpla já í kjörseðilinn þá er svarið í mótsögn við hvora spurningu fyrir sig, þ.e. kjósandinn svarar því þá játandi að hann vilji að deiliskipulagið haldi gildi sínu og játandi að hann vilji að deiliskipulagið falli úr gildi. Sama gildir um svar sem væri Nei.Undankjörfundir hófust 15. apríl og eru þau atkvæði sem hafa verið greidd eru ógild vegna framsetningar spurninga og möguleika á því að lýsa vilja við þeim.
Starfsmenn kynntu stöðu málsins, samskipti við dómsmálaráðuneytið, sýslumann og Landskjörstjórn. Engin svör hafa borist um ábendingar Kolbrúnar, hvort atkvæði sem greidd hafa verið séu ógild eða hvort hægt sé að breyta utankjörfundarkosningunni þannig að leyst sé úr ágalla hennar.
Bæjarstjóra og stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúa falið að funda með þeim stofnunum sem koma að utankjörfundarkosningu.