Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1036. fundur
26. apríl 2022 kl. 14:30 - 17:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 13
Málsnúmer 2203010F
Fundargerð samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 89
Málsnúmer 2204004F
Umræður sköpuðust um lið 4. í fundargerðinni, þar var fjallað um gervigrasvöll. Bæjarráð felur starfsmönnum að skoða kostnað við slíka framkvæmd.
Fundargerð samþykkt.
3.
Samningur um tímabundið lóðarvilyrði - Ósland C, D, E, F, G, H (Sandeyri 2 til 6)
Málsnúmer 202105132
Samningur um tímabundið lóðarvilyrði rann út 14. mars s.l. Félagið óskaði eftir framlengingu og hefur bæjarráð samþykkt framlengja lóðarvilyrðið um tvo mánuði. Jafnframt óskaði bæjarráð eftir upplýsingum um fjármögnun verkefnisins og ítarlegri upplýsingum um samstarfsaðila.
Farið yfir þá þætti sem bæjarráð óskaði eftir. Bæjarstjóra falið að fá endurskoðendur sveitarfélagsins til að fá staðfestingu á fjármögnun verkefnisins. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs og fulltrúar Marina Travel ehf. vinna áfram að skipulagi á svæðinu.
4.
Ósk um viðgerð á stíg milli 3. og 4. brautar á golfvelli
Málsnúmer 202101100
Erindi sem áður hefur fengið umfjöllun hjá bæjarráði. Ósk um þátttöku sveitarfélagsins við að lagfæra göngustíg/varnargarð á golfvelli.Kostnaðaráætlun liggur fyrir. Isavia hefur gefið samþykki fyrir þátttöku í verkefninu.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að skoða áhrif framkvæmdar á fjárhagsáætlun 2022 og undirbúa viðauka fyrir næsta fund bæjarráðs svo hægt sé að taka afstöðu til verkefnisins. Starfsmönnum falið að leita tilboð hjá jarðvegsverktökum í framkvæmdina.
5.
Urðunarstaður: Grænt bókhald 2021
Málsnúmer 202201006
Starfsmenn sveitarfélagsins og KPMG hafa tekið saman grænt bókhald fyrir urðunarstaðinn í Firði í Lóni. Samtals voru urðuð 1.588.931 kg. af úrgangi á urðunarstaðnum í Lóni árið 2021, urðaður úrgangur dróst saman um 290 tonn og tæp 1000 tonn frá árinu 2019. Mögulega má rekja minnkun urðaðs úrgangs til samdráttar í ferðaþjónustu í sveitarfélaginu af völdum COVID-19. Úrgangurinn er frá fyrirtækjum og heimilum.
Bæjarráð samþykkir grænt bókhald fyrir urðunarstaðinn í Lóni. Bæjarfulltrúar munu skrifa undir rafrænt á fimmtudaginn n.k.
6.
Samningur við Hestamannafélagið Hornfirðing
Málsnúmer 202102075
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Hestamannafélagið Hornfirðing. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkti drög að samningi og vísaði honum til samþykktar bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir samstarfssamning við Hestamannafélagið Hornfirðing. Fjárheimild rúmast innan fjárhagsáætlunar 2022.
7.
Samningur um vallarumhirðu 2022
Málsnúmer 202204032
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkti drög að nýjum samstarfssamning við knattspyrnudeild Umf. Sindra og vísaði til samþykktar í bæjarráði. Tímabil samnings lengist frá fyrri samning og samningsupphæð hækkar um 250.000 kr.
Bæjarráð vísar samning til skoðunar hjá fjármálastjóra m.t.t. til áhrifa á fjárhagsáætlunar 2022 og gerðar viðauka.
8.
Ósk um endurskoðun á samningi
Málsnúmer 202204046
Erindi frá SS Sport ehf. þar sem óskað er eftir endurskoðun á samningi um rekstur líkamsræktarstöðvarinnar. Í erindi kemur fram að iðkendum hefur fækkað töluvert eftir lokanir af völdum Covid og forsendur rekstrar þar með brostnar.
Bæjarráð felur starfsmönnum að skoða samninga við húseigendur og SS Sport ehf. með tilliti til rekstrarskilyrða og tímalengd samninganna.
9.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Málsnúmer 202110040
Bæjarstjóri ásamt stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúa og formanni kjörstjórnar funduðu með landskjörstjórn, fulltrúa frá dómsmálaráðuneyti, sýslumanni á Suðurlandi, fulltrúa sýslumanns á Höfn og fulltrúa frá innviðaráðuneyti vegna ágalla sem komið hafa upp í tengslum við íbúakosninguna. Ljóst er að spurningin er gölluð með tilliti til kosningar utankjörfundar þar sem ekki er hægt að svara spurningu með já eða nei. Við síðustu kosningar til Alþingis kusu 300 íbúar utankjörfundar en rúmlega 1500 voru þá á kjörskrá. Úrskurðarnefnd kosningamála tekur við kærum um gildi kosninga og úrskurðar að kosningum afloknum.
Bæjarráð harmar að málið sé komið í þennan farveg. Spurning vegna kosninganna þarf að liggja fyrir a.m.k. 4 vikum fyrir kjördag skv. 107 gr. sveitarstjórnarlaga og er því ekki hægt að gera breytingar á spurningunni.
Bæjarráð óskar eftir fundi með forsvarsmönnum íbúakosninganna til að fara yfir stöðuna í málinu og þá möguleika sem eru í stöðunni.
10.
Stefna Ice Lagoon ehf: Athafnir sveitarfélagsins 2010 til 2017
Málsnúmer 201805104
Í dómi Landsréttar var hluta af kröfum Ice Lagoon vísað frá. Ice Lagoon ehf. hefur ákveðið að óska eftir því að kæra þann hluta málsins til Hæstaréttar.
Lögmaður sveitarfélagsins í máli Ice Lagoon ehf. er Árni Helgason hdl. Hann er ekki með réttindi til að flytja mál fyrir hæstarétti, bæjarráð felur bæjarstjóra að semja við Jón Jónsson hrl. hjá Sókn ehf. til að vinna að málinu fyrir hönd sveitarfélagsins fyrir Hæstarétti í samstarfi við Árna Helgason.
11.
Kvísker - Skipan starfshóps um vernd
Málsnúmer 202204047
Erindi hefur borist frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu um skipan starfshóps sem hefur það markmið að vinna greiningu á mögulegum sviðsmyndir fyrir vernd Kvískerja. Starfshópurinn verði skipaður landeigendum, fulltrúa frá ráðuneyti og fulltrúa frá Sveitarfélagsinu Hornafirði.
Málinu frestað til næsta fundar.
12.
Útboð byggingar hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 202109040
Minnisblað frá FSRE sem sent var Heilbrigðisráðuneyti mánudaginn 25. apríl lagt fram. Í minnisblaðinu er óskað eftir að heilbrigðisráðuneytið afli aukinna fjárheimilda til verkefnisins vegna hækkunar á heildarkostnaðaráætlun í samræmi við lög um skipan opinberra framkvæmda nr. 84/2001.
Fulltrúar í bæjarráði hafa verið í samskiptum við heilbrigðisráðherra, fjármálaráðherra og formann fjárlaganefndar til að vinna að framgöngu málsins. Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir fundar fljótlega til að taka afstöðu til óskar um auknar fjárheimildir vegna uppfærðar kostnaðaráætlunar.
13.
Fundargerð - stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202203039
Fundargerð lögð fram til kynningar.