Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1037. fundur
29. apríl 2022 kl. 13:30 - 14:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Málsnúmer 202110040
Bæjarráð óskaði eftir fundi með þeim fulltrúum sem óskuðu eftir íbúakosningunni. Hópurinn þáði ekki boð um fund en fór fram á að íbúakosningunni yrði frestað. Bæjarráð samþykkir að fresta íbúakosningu vegna þeirra ágalla sem komnir eru upp í tengslum við utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Íbúakosningin þarf að fara fram innan árs frá því ósk um kosningu berst en erindið barst sveitarfélaginu þann 24. ágúst 2021.