Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1038. fundur
3. maí 2022 kl. 14:30 - 16:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 39
Málsnúmer 2204012F
Fundargerð samþykkt.
2.
Kvísker - Skipan starfshóps um vernd
Málsnúmer 202204047
Erindi hefur borist frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu um skipan starfshóps sem hefur það markmið að vinna greiningu á mögulegum sviðsmyndir fyrir vernd Kvískerja. Starfshópurinn verði skipaður landeigendum, fulltrúa frá ráðuneyti og fulltrúa frá Sveitarfélaginu Hornafirði.
Bæjarráð tilnefnir Eyrúnu H. Ævarsdóttur forstöðumanns menningarmiðstöðvarinnar í starfshóp á vegum ráðuneytisins.
3.
Erindi um flutning á Víkingaskipi Dakar frá Kópavogshöf til Hornafjarðar.
Málsnúmer 202204068
Erindi vísað til bæjarráðs frá Atvinnu- og menningarmálanefnd.
Bæjarráð sér sér ekki fært að samþykkja styrkbeiðnina.
4.
Húsnæðismál Vatnajökulsþjóðgarðs - ósk um samstarf
Málsnúmer 202112075
Bæjarstjóri sendi erindi til ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála þar sem óskað er samstarfs um húsnæðismál Vatnajökulsþjóðgarðs á Höfn. Erindinu hefur ekki verið svarað en óskað hefur verið eftir fundi með ráðherra vegna fregna um flutning á lögheimili Vatnajökulsþjóðgarðs til Hafnar í Hornafirði.
Lagt fram til kynningar.
5.
Vatnajökulsþjóðgarður - formlegt aðsetur flutt til Hafnar í Hornafirði
Málsnúmer 202204081
Formlegt aðsetur og lögheimili Vatnajökulsþjóðgarðs verður flutt til Hafnar í Hornafirði næsta haust. Ákvörðun um flutning aðseturs á landsbyggðina var tekin var í samráði við stjórn þjóðgarðsins.
Bæjarráð fagnar ákvörðun ráðherra. Allt frá stofnun þjóðgarðsins hafa fulltrúar sveitarfélagsins talað fyrir því að lögheimili og höfuð aðsetur þjóðgarðsins verði staðsett í Sveitarfélaginu Hornafirði. Starfsemi þjóðgarðsins hefur verið að eflast mjög síðustu ár og fjölsóttustu áfangastaðir þjóðgarðsins eru staðsettir í sveitarfélaginu. Starfsmönnum hefur verið að fjölga á undanförnum árum og eru heilsárs starfsmenn nú í kringum 13 talsins. Samstarf sveitarfélagsins við Vatnajökulsþjóðgarð hefur verið mjög gott allt frá upphafi og til marks um mikilvægi hans hefur bæjarstjóri verið formaður svæðisráðs og fulltrúi í stjórn lengst af.
6.
Úrgangsmálefni: 2022
Málsnúmer 202201005
Samningur við Íslenska Gámafélagið rennur út 31. júlí n.k. Framlagt minnisblað frá verkefnastjóra umhverfismála með tillögu að lausn mála til áramóta. Samhliða unnið að undirbúningi nýs útboðs í samræmi við ný lög um úrgangsstjórnun sem taka gildi um næstu áramót.
Bæjarráð felur starfsmönnum að hefja undirbúning vegna breytinga sem lagðar eru til í minnisblaði sem felur í sér tímabundna samninga; um sorphirðu við Funa ehf. og rekstur urðunarstaðar við Rósaberg ehf. Sveitarfélagið tekur yfir rekstur sorpmóttökustöðvar.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að meta áhrif breytinganna á fjárhagsáætlun 2022.
7.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2022
Málsnúmer 202204080
Fjármálastjóri fór yfir viðauka 1.
Bæjarráð samþykkir viðauka 1 og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar. Viðaukanum verður mætt með lækkun á handbæru fé.
8.
Ósk um viðgerð á stíg milli 3. og 4. brautar á golfvelli
Málsnúmer 202101100
Bæjarráð samþykkir fjárheimild til viðgerðar á varnargarði við golfvöllinn í samræmi við viðauka 1.
9.
Samningur um vallarumhirðu 2022
Málsnúmer 202204032
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning, fjárheimild rúmast innan ramma.
10.
Nýheimar - loftgæði
Málsnúmer 202204082
Björn Imsland fer yfir stöðu mála er varðar loftgæði í Nýheimum.
Bæjarráð felur fjármálastjóra og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs skoða framkvæmdaáætlun og viðhaldsáætlun eignasjóðs og hvort það sé svigrúm innan þeirra til framkvæmdanna. Bæjarráð óskar eftir sviðsmyndum með breyttri forgangsröðun annars vegar og hins vegar með viðbótarfjárheimild.
11.
Stöðuleyfisumsókn - Matarvagn plan Hafnarbraut 38
Málsnúmer 202104073
Ladislav Skala óskar eftir flutning á stöðuleyfi fyrir matarvagn frá bílastæði við Hafnarbraut 38 á svæði við sundlaug og klára leyfi á nýju svæði.
Bæjarráð fól starfsmönnum að afla upplýsinga hjá forstöðumanni íþróttamannvirkja og skólastjórum Grunnskóla Hornafjarðar. Ekki eru gerðar athugasemdir af þeirra hálfu.
Bæjarráð samþykkir að veita stöðuleyfi á umræddu svæði.
12.
Umsögn um nýtt rekstrarleyfi - Hvammur
Málsnúmer 202108005
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstarleyfis fyrir Hvamm, gististað í flokki II-B stærra gistiheimili. Bæjarráð Hornafjarðar veitti jákvæða umsögn með sömu fyrirvörum og byggingafulltrúi þann 28.09.2021.
Þar sem úr annmörkum hafi verið bætt innan tiltekins frests gerir bæjarráð engar athugasemdir við að leyfi verður gefið út án fyrirvara.
13.
Samningur um tímabundið lóðarvilyrði - Ósland C, D, E, F, G, H (Sandeyri 2 til 6)
Málsnúmer 202105132
Staðfesting á fjármögnun verkefnisins lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðunum til Marina Travel ehf. í samræmi við lóðarvilyrði.
14.
Fundargerð - stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202203039
Fundargerð lögð fram til kynningar.
15.
Fundargerð - stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202201083
Fundargerð lögð fram til samþykktar.