Bæjarráð Hornafjarðar
1040. fundur
17. maí 2022
kl.
14:30
-
17:05
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 90
Sviðstjóri tilkynnti bæjarráði að Kristín Guðrún Gestsdóttir hafi verið ráðin skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 246
Fundargerð samþykkt.
3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 36
Fundargerð samþykkt.
4.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 40
Fundargerð samþykkt.
5.
Hönnun og útboð, fráveita áfangi 3.b
Björn og Brynja gerðu grein fyrir verðkönnun á brunnum og dælum fyrir fráveitu.
Bæjarráð samþykkir kaup á tveimur dælubrunn, fjármagn rúmast innan fjárhagsáætlunar 2022.
Bæjarráð samþykkir kaup á tveimur dælubrunn, fjármagn rúmast innan fjárhagsáætlunar 2022.
6.
Gjaldskrá um húsnæði og búnað
Umræður um hækkun á gjaldskrá í takt við raunkostnað.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
7.
Staða sveitarsjóðs 2022
Fjármálastjóri fór yfir stöðu sveitasjóðs.
Reksturinn er í jafnvægi.
8.
Breyting á reglugerð nr.12122015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.
Skv. reglugerð nr. 230/2021 ber sveitarfélögum að færa byggðasamlög, sameignarfélög, sameignarfyrirtæki með ótakmarkaðri ábyrgð sveitarfélagsins í samantekin reikningsskil sín m.v. hlutfallslega ábyrgð sveitarfélagsins. Gildir þetta um einstaka liði rekstrar og efnahags óháð stærð eignarhlutarins. Tvö samstarfsverkefni sem sveitarfélagið er aðili að falla undir ákvæði reglugerðarinnar, þ.e. SASS og HAUST.Fjármálastjóri og endurskoðendur hafa lagt mat á áhrif samstarfsverkefna á reikningsskil sveitarfélagsins og er niðurstaðan sú að um óveruleg áhrif er að ræða eins og meðfylgjandi skjal sýnir og leggja til að verkefnin verði ekki tekin inn í áætlun og ársreikning sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir mat fjármálastjóra og endurskoðanda og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Innanríkisráðuneytið úrskurðaði í kærumáli gegn sveitarfélaginu um að höfnun á niðurfellingu gatnagerðargjalda vegna Hagaleiru 11, sé ólögmæt. Sveitarfélagið fékk ekki upplýsingar um að kærumál væri í vinnslu hjá ráðuneytinu og óskaði því eftir endurupptöku á úrskurðinum og að sveitarfélagið fengi tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum að vegna málsins.
Innanríkisráðuneytið hafnaði beiðni um endurupptöku málsins og ítrekaði sveitarfélagið beiðnina með frekari rökstuðningi áður en frestur til að óska eftir endurupptöku rann út.
Ekki hafa borist svör frá ráðuneytinu þrátt fyrir ítrekanir.
Ekki hafa borist svör frá ráðuneytinu þrátt fyrir ítrekanir.
10.
Gatnagerðagjöld - ósk um frest
Rannver Olsen óskar eftir því að fá frest á greiðslu gatnagerðagjalda fyrir lóð að Hagaleiru 9 meðan kæruferli vegna gatnagerðagjalda við Hagaleiru 11 eru í gangi og ekki komin niðurstaða í málið.
Bæjarráð synjar beiðni um frest á greiðslu gatnagerðargjalda enda kveða reglur sveitarfélagsins um greiðslu þeirra og telur bæjarráð að ekki séu forsendur til að veita undanþágu frá reglunum.
11.
Viðhorfskönnun - Almenningssamgöngur á Suðurlandi
Viðhorfskönnun var gerð til að kanna viðhorf íbúa á Suðurlandi gagnvart þjónustu strætó í landshlutanum. Er hún liður í þróunarverkefni á sviði almenningssamgangna á Suðurlandi með áherslu á rannsóknir, öryggismál, kynningar- og markaðsmál.
Lagt fram til kynningar.
12.
Uppbygging íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu
Sveitarfélagið óskaði eftir samstarfi við Leigufélaginu Bríet um uppbyggingu leiguíbúða við Hrollaugsstaði og við Borgartún í Öræfum. Svar barst frá leigufélaginu þar sem stjórn leigufélagsins hafnaði umsókninni þar sem félagið er nú þegar í uppbyggingarverkefni á Höfn.
Bæjarráð harmar niðurstöðu Leigufélagsins Bríetar sem er í andstöðu við vilja stjórnvalda og markmiða leigufélagsins sem er uppbygging leigumarkaðar á landsbyggðinni þar sem markaðsaðstæður eru ekki fyrir hendi.
13.
Fyrirspurn - Gjaldfrjáls gisting í Hrollaugsstöðum
Erindi frá Verkis og Náttúrustofu Suðausturlands um styrk í formi niðurfellingu á húsaleigu á Hrollaugsstöðum fyrir sjálfboðaliða vegna merkinga á helsingjum, í þrjár nætur.
Bæjarráð samþykkir beiðnina.
14.
Umsókn um lóð - Borgartún 10
Umsókn Tröll fasteigna ehf. um lóð að Borgartúni 10.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um fjármögnun verkefnisins.
15.
Umsókn um lóð - Borgartún 8
Umsókn Tröll fasteigna ehf. um lóð að Borgartúni 8.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um fjármögnun verkefnisins.
16.
Umsókn um lóð - Álaleira 15
Umsókn Ewu Ursulu Jarzyna um lóð að Álaleiru 15.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til bæjarstjórnar.
17.
Umsókn um lóð - Hraunhóll 3
Umsókn Þórólfs Arnars Einarssonar að lóð að Hraunhól 3.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til bæjarstjórnar.
18.
Umsókn um lóð Júllatún 21
Árdís Erna Halldórsdóttir óskar eftir fresti vegna byggingaframkvæmda á lóð Júllatún 21. Byggingarleyfisumsókn liggur fyrir hjá umhverfis- og skipulagssviði, teikningum var skilað inn í apríl og verða teknar fyrir í bæjarstjórn 19. maí nk. Frestur til að ljúka framkvæmdum er liðinn, lóðinni var úthlutað árið 2017 en skv. reglum um úthlutun lóða hefur lóðarhafi fjögur ár til að ljúka framkvæmdum.
Bæjaráð samþykkir að veita leyfi fyrir frest á framkvæmdum, málinu vísað til bæjarstjórnar þar sem beiðni um breytingu á skipulagi er til afgreiðslu. Verði áform lóðarhafa samþykkt skulu framkvæmdir hefjast innan tveggja mánaða.
19.
Umsókn um lóð - Bíóbraggi, Heppa
Íshúsið Bistro ehf. hefur ákveðið að skila inn lóðinni Bíóbragga aftur til sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir lóðarskilin.
20.
Umsókn um styrk - bókarútgáfa
Ungmennafélagið Sindri óskar eftir styrk sem nota á til þess að rita sögu félagsins. Markmiðið er að safna saman og halda til haga sögu og sértækum menningararfi Ungmennafélagsins Sindra sem er fjölmennasta félagið í Austur Skaftafellssýslu. Gefa á út bók sem er aðgengileg á veraldarvefnum og halda sýningu á verkinu í Heklu félagsheimili UMF. Sindra á 88 ára starfsafmæli félagsins.
Bæjarráð samþykkir að veita 500 þúsund kr. styrk í verkefnið.
21.
Fundargerðir stjórnar Nýheima Þekkingarseturs
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.