Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1041. fundur
27. maí 2022 kl. 10:00 - 10:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Auka aðalfundur SASS
Málsnúmer 202205106
Lagt fram til kynningar.
Fulltrúar sveitarfélagsins verða kosnir á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar.
2.
Uppsögn - Leigusamningur SS Sport
Málsnúmer 202205129
Erindi frá Kolbrúnu Björsdóttur fyrir hönd SS Sport ehf. þar sem hún segir upp leigusamningi um leiguhúsnæði að Álaugarvegi 7, með fyrirvara um að sveitarfélagið semji um áframhaldandi leigu á öðrum forsendum en núgildandi leigusamningur.
Uppsögn leigusamnings móttekin.
Lagt fram til kynningar, vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
3.
Umsögn um útgáfu leyfa - Tækifærisleyfi fyrir sjómannadagshátíð
Málsnúmer 202205068
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn fyrir Kvennakór Hornafjarðar vegna tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi fyrir sjómannadansleik.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
4.
Umsögn - Frumvarp til laga um stefnumótandi byggðaáætlun 2022-2036
Málsnúmer 202205094
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036, 563. mál. frestur til að veita umsögn er til 8. júní.
Lagt fram til kynningar.
5.
Umsögn - Frumvarp til laga um skipulagslög (uppbygging innviða)
Málsnúmer 202205105
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar eftir umögn um frumvarp til laga um skipulagslög (uppbygging innviða), 573. mál frestur til að veita umsögn er til 8. júní.
Vísað til umhverfis- og skipulagsstjóra.
6.
Umsókn um lóð - Júllatún 10
Málsnúmer 202205032
Umsókn Ewu Urszulu Jarzyna um lóð að Júllatúni 10 fyrir misskilning var henni úththlutuð lóð að Álaleiru 15 og óskar hún eftir að skila henni.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutun að Júllatúni 10 og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Starfsmönnum falið að aulýsa lóðina Álaleiru 15.
7.
Umsókn um lóð - Álaleira 6
Málsnúmer 202012041
Umsókn um frest til samþykktar á byggingaráformum Álaleiru 6.
Bæjarráð óskar eftir rökstuðningi fyrir framlagðir ósk.
8.
Umsókn um lóðir - Sandeyri 2-7
Málsnúmer 202205127
Umsókn Marina Travel á lóðum að Sandeiri 2,3,4,5,6 og 7 í Óslandi, fyrir liggur samningur um lóðarvilyrði á sömu lóðum.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Umsókn um lóð - Borgartún 8
Málsnúmer 202205010
Umsókn Tröll Fasteigna ehf. um lóð að Borgartúni 8.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10.
Umsókn um lóð - Borgartún 10
Málsnúmer 202205011
Umsókn Tröll Fasteigna ehf. um lóð að Borgartúni 10.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.