Bæjarráð Hornafjarðar
1058. fundur
3. nóvember 2022
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 94
Fundargerð samþykkt.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 44
Fundargerð samþykkt.
3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 45
Fundargerð samþykkt.
4.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs 2022
Bæjarráð kallar eftir frekari upplýsingum og frestar afgreiðslu á gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs til næsta fundar.
5.
Aðgengi að Svavarssafni
Bæjarráð þakkar fyrir metnaðarfullt erindi og fagnar hugmyndum um bætta ásýnd að Svavarssafni og að aðkoma að safninu verði meira aðlaðandi og aðgengilegri. Málinu er vísað til starfsfólks til frekari vinnslu.
6.
Menningarmiðstöð
Söfn innan Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar eru viðurkennd söfn og lúta því þeim lögum sem skilgreind eru fyrir söfn stofnunarinnar, þá er viðburðahald einnig stór hluti starfsemi stonfunarinnar sem halda þarf utan um. Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til að skerpt verði á skilgreiningum, starfsemin verði aðgreind og að fjárhagsrammi hvors um sig verði skýr: Að nýtt starf verið skilgreint til að annast viðburðastjórn og að nauðsynlegt fjármagn fylgi. Nefndin vísar tillögunni til bæjarráðs.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og tekur undir með nefndinni að kynna þarf enn betur hvert lögbundið hlutverk Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar er. Varðandi ósk um aukið stöðugildi í viðburðarstjóra er því vísað til vinnu við fjárhagsáætlanagerð sveitarfélagsins.
7.
Gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar
Bæjarráð samþykkir 10% hækkun á sorphirðu- og sorpeyðingargjöld. Frekari vinnu við gjaldskrárbreytingar vísað til fjárhagsáætlanagerðar sveitarfélagsins.
8.
Gjaldskrá fyrir söfnunarstöð
Vinnu við gjaldskrá vísað til áframhaldandi vinnu starfsfólks.
9.
Fjárhagsáætlun 2023-2026
Verið er að finna fundarstað og dagsetningu og málinu er frestað til næsta fundar bæjarráðs.
10.
Umsögn - Tillaga til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara
Bæjarráð fagnar tillögunni.