Bæjarráð Hornafjarðar
1059. fundur
10. nóvember 2022
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs 2022
Gauti vék af fundi undir umræðu um gjaldskrá sundlaugar.
Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs með áorðnum breytingum.
2.
Brunavarnaáætlun 2021-2026
Bæjarráð óskaði eftir upplýsingum um hver staða úrbóta slökkviliðsins er.
Lagt fram til kynningar og vísað til áframhaldandi vinnu bæjarstjóra.
3.
Þjóðlenda - starfsemi í Kollumúla
Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsti eftir aðila til að nýta lóð L234664 undir aðstöðuhús fyrir dagdvalar- og tjaldgesti í Kollumúla og salernishús, auk þess sem gert er ráð fyrir byggingu á aðstöðuhúsi fyrir skálaverði á lóðinni. Um er að ræða leyfi með gildistíma frá 01.11.2022-01.11.2042 með möguleika á framlengingu til fimm ára í senn í allt að fjögur skipti, eða í heild til dagsins 01.11.2062.Auglýsingafrestur rann út 9. nóvember kl. 15:00 ein umsókn barst.
Starfsmönnum falið að undirbúa samning við Ferðafélag Austur-Skaftfellinga.
4.
Samskiptareglur kjörinna fulltrúa og starfsmanna
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
5.
Skipulagsmál - Óleyfisframkvæmdir í landi Hofs
Brynja gerði grein fyrir óleyfisframkvæmdum í landi Hofs.
Lagt fram til kynningar.
6.
Fjárhagsáætlun 2023-2026
Íbúafundir vegna fjárhagsáætlunar verða haldinir á föstudagshádegi Nýheimum 25. nóvember kl.12:00 og í Öræfum og Suðursveit 30. nóvember.
7.
Byggingarleyfisumsókn - Hraunhóll 1, einbýlishús
Lóðarhafar óska eftir að skila lóðinni.
Bæjarráð samþykkir lóðaskilin og felur starfsmönnum að auglýsa lóðina.
8.
Fundarboð - Kynning á skýrslu um stöðu þjóðgarða og friðlýstra svæða
Lagt fram til kynningar.
9.
Aðgengi sjúkrabifreiða
Sjúkraflutniga HSU á Suðurlandi óska eftir að fá að afnot af göngustíg sem liggur milli Víkurbrautar og Vesturbrautar sem akbraut á meðan frammhvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili stendur til þess að auka öryggi sjúklinga.
Bæjarráð heimilar akstur sjúkrabifreiða á göngustíg við milli Víkurbrautar og Vesturbrautar á meðan þörf er á vegna framkvæmda við nýtt hjúkrunarheimili. Starfsmönnum falið að koma fyrir merkingum og kynna íbúum.
10.
Umsögn - Áform um lagabreytingar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.