Bæjarráð Hornafjarðar
1060. fundur
17. nóvember 2022
kl.
10:00
-
11:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 46
Fundargerðin samþykkt.
2.
Gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar
Uppfærð gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Sveitarfélaginu Hornafirði.Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að við gjaldtöku vegna förgunar á dýraleifum verði lagt á gjald skv. búfjáreftirlitsskýrslu til að standa undir kostnaði við förgunina. Einnig er lögð til 10% hækkun á sorphirðu og sorpeyðingargjöldum.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
3.
Fjárhagsáætlun 2023-2026
Farið yfir álagningu fasteignagjalda í sveitarfélaginu.
Fjármálastjóra falið að vinna áfram að málinu.
Fjármálastjóra falið að vinna áfram að málinu.
4.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Erindi frá Landslögum til Innviðaráðuneytisins lagt fram.
5.
Umsögn - reglugerð íbúakosningu sveitarfélaga
Eftir breytingu á sveitarstjórnarlögum um íbúakosningar var unnið að reglugerð sem er lögð fram sem drög er hún til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda. Er nú mælt fyrir um í sveitarstjórnarlögum að íbúakosningar sveitarfélaga fari fram á grundvelli reglna sem sveitarfélög setja sér sjálf, en ráðuneyti sveitarstjórnarmála skal setja reglugerð þar sem mælt er fyrir um þær lágmarkskröfur sem gera þarf til íbúakosninga sveitarfélaga.Fyrirmynd af reglunum eru einnig lagðar fram til kynningar og umsagnar.
Bæjarráð gerir athugasemd við að reglugerðin taki ekki til rafrænna kosninga sem væri eðlilegt í nútíma samfélagi, að öðru leiti fagnar bæjarráð framkomnum drögum og vonar að þau taki gildi sem fyrst.
6.
Fundarboð - Kynning á framkvæmdum golfklúbbsins
Golfklúbburinn óskar eftir fundi með bæjarráði í næstu viku.
Starfsmönnum falið að hafa samband við forsvarsmenn Golfklúbbsins um fundartíma.
7.
Umsögn um útgáfu leyfa
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi/tímabundið áfengisleyfi fyrir Góuhóf í Öræfum þann 4. mars 2023.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
8.
Ósk um umsögn vegna flugeldasýningar
Erindi frá Björgunarfélagi Hornafjarðar þar sem óskað er eftir umsögn og leyfi til þess að halda flugeldasýningu um áramót.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn og samþykkir að flugeldasýningin verði haldin á landi sveitarfélagsins.
9.
Umsókn um lóð - Álaleira 6
Lóðarhafi óskar eftir að skila lóðinni.
Bæjarráð samþykkir lóðarskilin og felur starfsmönnum að auglýsa lóðina.
10.
Forkaupsréttur vegna sölu á Arelí SF110
Erindi frá Bátum og búnaði ehf. þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið taki afstöðu hvort það ætli að nýta sér forkaupsrétt á skipinu Aríel SF110 sem stendur til að selja til kaupanda í Snæfellsbæ.
Bæjarráð samþykkir að Sveitarfélagið Hornafjörður muni ekki nýta sér forkaupsrétt á Aríel SF110 enda er ekki um sölu á kvóta að ræða.