Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1063. fundur
8. desember 2022 kl. 10:00 - 12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 18
Málsnúmer 2211001F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Félagslegt leiguhúsnæði
Málsnúmer 202201071
Félagslegar íbúðir í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar eru 40 sem er hlutfallslega há tala miðað við önnur sambærileg sveitarfélög. Í stefnu sveitarfélagsins er að fækka íbúðum í eigu þess skv. reglum um sölu í íbúða í eigu þess. Starfsfólk velferðarsviðs hefur unnið þarfagreiningu undanfarin ár varðandi þörf fyrir félagslegt leiguhúsnæði í sveitarfélaginu og leggur til að seldar verði allt að 6 íbúðir í eigu þess.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu og kanna möguleika á aðkomu húsnæðissameignarfélagsins Brák.
3.
Smiðjur - iðja í stuðnings-og virkniþjónustu
Málsnúmer 202211083
Í 24. gr. laga 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir eiga allir að hafa kost á að sækja atvinnu- og hæfnistengda þjónustu við hæfi og sveitarfélögum ber skylda til að starfrækja vinnustaði fyrir verndaða vinnu. Í stuðnings- og virkniþjónustu velferðarsviðs er gert ráð fyrir dagdvöl fatlaðra. Dagdvöl á að innihalda iðju við hæfi þar sem einstaklingar koma saman og vinna í verkefnum sem hafa tilgang og stuðla að bættri heilsu og betri líðan. Í starfsemi velferðarsviðs hefur iðja í dagdvöl fatlaðra verið ábótavant og leggur starfsfólk sviðsins til að gerð verði gangskör í þeim efnum og að veitt verði á næstkomandi ári sérstöku fjármagni til efniskostnaðar fyrir slíka iðju.Velferðarnefnd samþykkti að vísa til bæjarráðs tillögu um að lagðar verði 1.000.000 kr.- fyrir starfsemi í iðju í dagdvöl fyrir fólk með fötlun.
Bæjarráð samþykkir tillögu velferðarnefndar og vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar 2023.
4.
Kynning - Sameiginlegt farsældarráð á Suðurlandi
Málsnúmer 202211117
Erla greindi frá hugmyndir um sameiginlegt Farsældarráð á Suðurlandi þar sem ekki hefur tekist að koma af samtarfi á þeim vetvangi.
Bæjarstjóra og félagsmálastjóra falið að vinna áfram að málinu.
5.
Fjárhagsáætlun 2023-2026
Málsnúmer 202208062
Fjárhagsáætlun 2023 og þriggja ára áætlun 2024-2026 vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
6.
Beiðni um stuðning við bíóklúbb
Málsnúmer 202212019
Erindi frá Emil Moravek Jóhannssyni fyrir hönd áhugahóps um kvikmyndir og kvikmyndasýningar sem eru að stofna félag um nýjan Bíóklúbb. Bíóklúbburinn óskar eftir samþykki sveitarfélagsins til að gera Bíóloftið að veruleika í sýningarsalnum í Sindrabæ.Þá óskar Bíóklúbburinn einnig eftir fjárhagslegum stuðningi við útlagðan kostnað við tækjakaup á meðan önnur fjármögnun fer fram.
Bæjarráð óskar eftir umsögn skólastjóra Tónskóla Austur- Skaftafellssýslu- og vísar erindinu til umsagnar atvinnu- og menningarmálanefndar.
7.
Samningur við Björgunarfélag Hornafjarðar
Málsnúmer 202212017
Endurnýjun á samningi við Björgunarfélag Hornafjarðar. Með samningnum er ætlað að efla samstarf Sveitafélagsins Hornafjarðar og Björgunarfélags Hornafjarðar, þannig að tryggja öflugt almannavarna, félags- og öryggisstarf í sveitarfélaginu. Helstu breytingar á samningnum eru að skoða framhaldið á því varðandi nýja björgunarmiðstöð. 13. gr. er ný grein þar er greint frá að vegna uppbyggingar björgunarmiðstöðvar félagsins við Sæbraut skuldbindur Sveitarfélagið Hornafjörður sig til að styrkja BH fyrir innviðagjödlum sem snúa að greiðslum til sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir samninginn og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Umsögn - Kynning á efni Grænbókar og starfsaðstæðum kjörinna fulltrúa
Málsnúmer 202212001
Veigamikill þáttur í vinnu innviðaráðneytisins felst í undirbúningi stefnumótunar stjórnvalda á málefnasviðum ráðuneytisins á sviði byggða-, húsnæðis-, samgöngu-, skipulags- og sveitarstjórnarmála.Eftir víðtæka gagnasöfnun hefur grænbók í sveitarstjórnarmálum með stöðumati og valkostum sveitarstjórnarstigsins til framtíðar litið dagsins ljós í samráðsgátt stjórnvalda. Grænbókin byggir á stefnumótun stjórnvalda, upplýsingum frá hagsmunaaðilum og víðtæku samráði við á fjórða tug sveitarfélaga. Einnig er lögð fram skýrsla verkefnisstjórnar um starfsaðsætður kjörinna fulltrúa og leiðir til að efla starfsaðstærður þeirra.
Vísað til áframhaldandi vinnu.
9.
Umsögn - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga
Málsnúmer 202211115
Með frumvarpinu er lagt til að hætt verði að miða stofn álagningar fasteignaskatts við fasteignamat og þess í stað verði sá skattur framvegis lagður á sem tiltekin fjárhæð á hvern fermetra flatarmáls fasteigna sem er föst, hlutlæg og fyrirsjáanleg stærð.
Lagt fram til kynningar.
10.
Umsókn um lóð - Álaleira 6
Málsnúmer 202211045
Umsókn Björgunarfélags Hornafjarðar um lóð að Álaleiru 6.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
11.
Umsókn um lóð - Ósland L og M
Málsnúmer 202104035
Humarhöfnin ehf. óskar eftir að skila inn lóð M í Óslandi.
Bæjarráð samþykkir lóðarskilin og felur starfsmönnum að auglýsa lóðina.
12.
Fundargerð 915 - Samband íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202212002
Fundargerðin lögð fram til kynningar.