Bæjarráð Hornafjarðar
1064. fundur
15. desember 2022
kl.
10:00
-
11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 48
Fundargerðin samþykkt.
2.
Fjölmenning - stefnumótun
Bæjarráð samþykkir að Eyrún Fríða Árnadóttir, Tinna Sigurðardóttir og Gunnar Ásgeirsson sitji í stýrihópi um manréttindastefnu.
3.
Þjóðlenda - starfsemi í Kollumúla
Leigusamningur um leigu á landi í Kollumúla lagður fram.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
4.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Erindi frá innviðaráðuneytinu þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins um meðfylgjandi kvörtun, auk þess sem ráðuneytið óskar eftir gögnum málsins sem kunna að varpa ljósi á aðdraganda og meðferð þess hjá sveitarfélaginu.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
5.
Beiðni um stuðning við bíóklúbb
Umsögn Jóhanns Morávek lögð fram.
Starfsmönnun falið að vinna áfram að málinu.
6.
Fyrirspurn um kaup á þjónustu
Stefán fór yfir málið og greindi frá erindi Funa ehf.
Lagt fram til kynningar og áframhaldandi vinnu starfsmanna.
7.
Vöðvasullur í sláturlömbum
Í bókuninni kemur fram að sullur hefur greinst í sauðfé á svæði Heilbrigðiseftirlits Austurlands.
Starfsmönnum falið að minna alla dýraeigendur að sinna ormahreinsun árlega svo komið verði í veg fyrir að vöðvasullur berist á milli dýra.
8.
Umsókn um styrk til skráningu sögu akstursíþrótta
Erindi frá Gunnari Pálma Péturssyni þar sem hann óskar eftir styrk til að styðja við sögu akstursíþrótta.
Vísað til styrkjaúthlutunar menningarmálanefndar.
9.
Umsögn um útgáfu leyfa - Þorrablót Hafnar 2023
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi fyrir Þorrablót Hafnar 21. janúar.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
10.
Umsókn um lóð - Dalbraut 2 a
Rúnar Þór Guðmundsson og Sigrún Gunnbjörnsdóttir óska eftir breytingu á fyrirtæki skráð sem lóðarhafa lóða Dalbraut 2a, 2b, og 2c. Lóðunum var úthlutaðar til Útsparks ehf. en óskað er eftir að Fallastakkanöf ehf. verði lóðarhafi. Samkvæmt skráningu í fyrirtækjaskrá á Sigrún Gunnbjörnsdóttir 100% hlut í báðum fyrirtækjum.
Bæjarráð samþykkir erindið og telur það ekki vera framsal á lóðarréttindum þar sem sami einstaklingur er eigandi beggja fyrirtækja. Bæjarráð bendir einnig á að ekki er um skil á lóðunum né endurúthlutun að ræða og því ber lóðarhafa að framfylgja tímamörkum vegna úthlutunar frá 17.08.2022.
11.
Umsögn - Drög að reglum um varðveislu og eyðingu gagna
Lagt fram til kynningar.