Bæjarráð Hornafjarðar
1065. fundur
22. desember 2022
kl.
10:00
-
12:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 19
Fundargerðin samþykkt.
2.
Fræðslu- og frístundanefnd - 96
Fundargerðin samþykkt.
3.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 46
Fundargerðin samþykkt.
4.
Samkomulag um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, með samkomulagi við ríkið um breytingu á fjármögnum þjónustu við fatlað fólk.Samkomulagið felur í sér breytingu á fjármögnun lögbundinnar þjónustu við fatlað fólk samkvæmt lögum um málefni fatlaðs fólks frá því sem kveðið var á um í endanlegu samkomulagi ríkis og sveitarfélaga dags þann 15. desember 2015. Fjárhagsrammi lögbundinnar þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk verður 1,46% útsvarshlutfall en þar af renna 0,25% til viðkomandi sveitarfélaga en 1,21% í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga til jöfnunar vegna fatlaðs fólks. Enn fremur renna 0,235% af innheimtum skatttekjum ríkisins í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga til jöfnunar vegna þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk. Breytingar á útsvari sveitarfélagsins fara úr 14.52% lagt er til að hækka um 0,22% í 14,74% en á móti kemur lækkun á tekjuskatti um samsvarandi hlutfall í báðum þrepum.
Bæjarráð fagnar samkomulaginu og vísar útsvarshækkuninni sem fellst í samkomulaginu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.
Barnaverndarlög
Með nýrri skipan barnaverndarþjónustu verða sett á lagginrar umdæmi barnaverndarþjónustu. Í umdæmi hverrar barnaverndarþjónustu skulu vera í það minnsta 6.000 íbúar. Íbúafjöldi í Fjarðarbyggð er yfir 5.000 manns og yfir 2.500 í Sveitarfélaginu Hornafirði. Sveitarfélög hafa samvinnu um barnaverndarþjónustu í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Velferðarnefnd óskar eftir að starfsmenn hefji viðræður við velferðarsvið Fjarðarbyggðar um samsstarf og sameiginlegt umdæmi í barnarverndarþjónustu.
Bæjarráð samþykkir að hefja viðræður við Fjarðarbyggð um sameiginlega barnaverndarþjónustu með Fjarðarbyggð.
Ásgerður harmar að ekki hafi náðst samtal við sveitarfélög á Suðurlandi um barnaverndarþjónustu.
Ásgerður harmar að ekki hafi náðst samtal við sveitarfélög á Suðurlandi um barnaverndarþjónustu.
6.
Samningur um rekstur umdæmisráðs barnaverndar á landsbyggðinni
Fjölmörg sveitarfélög hafa tekið sig saman og stofnað umdæmisráðu um barnavernd á landsbyggðinni. Sveitarfélögin sem eiga aðild að umdæmisráði Landsbyggða skipa fimm manna valnefnd er fer með umboð sveitarfélagana til skipunar í umdæmisráð barnaverndar sbr. viðauka við samning þennan. Sveitarfélögin koma sér saman um að eitt þeirra sveitarfélaga sem valið er í valnefnd verði umsýslusveitarfélag sem er falið að annast fjárhagslega umsýslu vegna reksturs ráðsins og jafnframt ætlað að hafa yfirsýn yfir starf ráðsins. Valnefnd skal skipuð einum fulltrúa frá hverjum landsfjórðungi auk þess sem sá fimmti skal vera frá umsýslusveitarfélagi hverju sinni.
Bæjarráð samþykkir uppfærðan samning um rekstur umdæmisráða á landsbyggðinni og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Ósk um stuðning við rekstur crossfit stöðvar
Erindi fyrir hönd Fenris Elite sem rekur crossfit stöð á Höfn. Ætlunin er að flytja stöðina í annað húsnæði, óskað er eftir að sveitarfélagið styðji við reksturinn með niðurgreiðslu á húsaleigu.
Starfsmönnum falið að kalla eftir frekari upplýsingum í samræmi við umræður á fundinum.
8.
Beiðni um stuðning við bíóklúbb
Lagt fram til kynningar.
9.
Þjóðlenda - starfsemi í Kollumúla
Drög að leigusamningi um þjóðlendu fyrir starfsemi Ferðafélags Austur- Skaftefllinga í Kollumúla. Innan þjóðlendunnar „Lónsöræfa (nyðri hluti Stafafellslands)“ hefur verið afmörkuð og stofnuð í fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands 2.400 m2 lóð sem ber heitið „Múlaskáli“ með landnúmerinu 234664. Um er að ræða 2.400 m2 lóð undir mannvirki fyrir fjallaskála og gert er ráð fyrir að nýtt aðstöðuhús rísi innan lóðarinnar. Á lóðinni er nú þegar 48,5 m2 fjallaskáli og salernishús með sturtuaðstöðu, bæði mannvirkin eru í eigu Ferðafélags Austur-Skaftafellssýslu. Aukalega er heimilt að byggja 25 m2 aðstöðuhús. Leigutaki ber sjálfur ábyrgð á að afla þeirra leyfa sem krafist er vegna framkvæmda og starfsemi á lóðinni.
Bæjarráð samþykkir leigusamninginn og samkomulag við forsætisráðuneytið vegna Kollumúla.
10.
Hverfaráð
Málið er í vinnslu en lagt fram til að hefja umræðuna.
Starfsmönum falið að útfæra tillögur að næstu skrefum varðandi hverfaráð.
11.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Innanríkisráðuneytið óskaði eftir umsögn sveitarfélagsins um meðfylgjandi kvörtun auk þess sem ráðuneytið óskar eftir gögnum málsins sem kunna að varpa ljósi á aðdraganda og meðferð þess hjá sveitarfélaginu.Starfsmenn ásamt lögfræðingi sveitarfélagsins hafa unnið umsögn sem senda á innanríkisráðuneytinu í framhaldi af afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi umsögn og felur starfsmönnum að senda innanríkisráðuneytinu hana ásamt þeim gögnum sem kunna að varpa ljósi á aðdraganda og meðferð málsins hjá sveitarfélaginu og ráðuneytinu.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa - Þorrablót eldri Hornfirðinga
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi til áfengisveitinga fyrir Þorrablót eldri Hornfirðinga 27. janúar 2023.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
13.
Umsögn um útgáfu leyfa - Þorrablót Nesja og Lónmanna 2023
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi til áfengisveitinga fyrir Þorrablót Nesja- og Lónmanna 28. janúar 2023.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
14.
Fundargerð - Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Fundargerðirnar lagðar fram til kynnignar.
15.
Þrettándabrenna
Erindi frá Ugnmennafélaginu Mána þar sem óskað er eftir umsögn um brennuleyfi á þrettándanum.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með fyrirvara um jákvæða umsögn slökkvistjóra.
16.
Áramótabrenna 2022
Erindi frá Björgunarfélagi Hornafjarðar þar sem óskað er eftir umsögn við því að félagið haldi áramótabrennu.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með fyrirvara um jákvæða umsögn slökkvistjóra.
17.
Fundarboð - Vinnufundur með KPMG
Samtök orkusveitarfélaga hafa gert samning við ráðgjafafyrirtækið KPMG vegna vinnu við stefnumótun fyrir samtökin. Einn liður í vinnuni er að fá fram viðhorf og sýn stjórnar samtakanna, aðildarsveitarfélaga og eftir atvikum annarra lykilhagaðila. Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga hefur því ákveðið að boða aðildarsveitarfélög til vinnufundar (staðfundur) með ráðgjafafyrirtækinu KPMG þann 27. janúar.
Bæjarstjóra falið að mæta á fundinn í umboði sveitarfélagsins.
18.
Fundargerð 54 - Samtök orkusveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
19.
Fundargerð 916 - Samband Íslenskra sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
20.
Úthlutun byggðakvóta 2022-2023
Erindi frá Matvælaráðuneytinu þar sem kemur fram að úthlutun byggðarkvóta til byggðarlaga á fiskveðiárinu 2022/2023, úthlutað var 1,3% af byggðarkvóta til Hafnar.Þar sem endanleg úthlutun byggðarkvóta liggur fyrir er sveitarfélögum gefin frestur til 13. janúar nk. til að senda ráðuneytinu tillögur um sérreglur.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu og undirbúa umsókn um sérreglur byggðarkvóta.