Bæjarráð Hornafjarðar
1066. fundur
5. janúar 2023
kl.
10:00
-
11:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Úthlutun byggðakvóta 2022-2023
Á 1066. fundi bæjarráðs Hornafjarðar þann 5. janúar 2023 var ákveðið að fela atvinnu- og ferðamálafulltrúa að senda inn erindi vegna eftirfarandi óska um sérreglur á 4. gr. reglugerðar nr. 1370/2022 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022/2023:
4. gr.
Viðmiðanir um úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa.
Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 15% úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar, þó ekki meira í þorskígildum talið en viðkomandi bátur landaði í þorskígildum talið á fiskveiðiárinu 2021/2022. Því sem eftir stendur af byggðakvóta skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022.

2.
Sorphirðudagatal 2023
Stefán mun gerði grein fyrir þrem útfærslum á sorphirðudagatali fyrir árið 2023.
Bæjarráð samþykkir sorphirðudagatal fyrir árið 2022.
3.
Styrktarbeiðni - Íslensk heimldiarmynd, Draumar, konur og brauð
Erindi frá Gant Rouge Films ehf. þar sem óskað er eftir styrk frá sveitarfélaginu fyrir framleiðslu á íslenskri heimildamynd sem ber titilinn Draumar, konur og brauð.
Bæjarráð hafnar styrkbeiðninni.
4.
Hverfisráð
Starfsmönnum falið að halda áfram að málinu.
5.
Samskiptareglur kjörinna fulltrúa og starfsmanna
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
6.
Flugeldasýning á þrettándanum
Bæjarráð samþykkti að veita jákvæða umsögn í gegn um tölvupóst.
Lagt fram til kynningar.
7.
Fundargerðir stjórnar Nýheima Þekkingarseturs
Fundargerðinar lagðar fram til kynningar.
8.
Lóðamál - Hafnarbraut 38, leigusamningur
Bæjarráð samþykkir yfirlýsingu um aflýsingu lóðarleigusamnings að Hafnarbraut 38.
9.
Umsókn um lóð Hagatún 16
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.