Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1068. fundur
19. janúar 2023 kl. 10:00 - 12:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 47
Málsnúmer 2301014F
Fundargerð samþykkt.
2.
Humarhátíð
Málsnúmer 202301049
Umræður um Humarhátíð og stefnu sveitarfélagsins á umgjörð hátíðarinnar.
Vísað til vinnu atvinnu- og menningarmálanefndar.
3.
Hornafjörður náttúrulega
Málsnúmer 202301036
Bæjarstjóri fór yfir heildarstefnu sveitarfélagsins, Hornafjörður Náttúrulega sem unnin var á árunum 2019-2021. Að stefnumótun komu kjörnir fulltrúar, starfsmenn sveitarfélagsins, íbúar og aðrir haghafar. Gildi sveitarfélagsins eru, Virðing, framsækni og samvinna.Stefnan byggir á fjórum meginstoðum um: Umhverfis- og loftslagsmál, Félagslega þætti, Hagsæld og Stjórnarhætti með skilgreindum áherslum og markmiðum undir hverri áherslu. Á þessu ári verður unnið markvisst að innleiðingu stefnunnar með öllu starfsfólki sveitarfélagsins og hefur verkefnaáætlun fyrir árið verið kynnt og mun sveitarfélagið njóta aðstoðar Nýheima þekkingaseturs við verkefnastjórn.
Bæjarráð vísar heildarstefnu sveitarfélagsins Hornafjörður Náttúrulega til kynningar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
4.
Brunavarnaáætlun 2023-2028
Málsnúmer 202103109
Borgþór gerði grein fyrir brunavarnaráætlun 2023-2028.Áhættumat hefur verið unnið fyrir helstu staði eða fyrirtæki þar sem mest hætta er á slysum eða tjóni vegna bruna, sprenginga eða mengunar. Áhætta á starfssvæði SH eru mismunandi og hafa verður í huga stærð og getu slökkviliðsins á viðkomandi stað. Þó ber að taka fram að SH er ein heild og kemur fram sem eitt afl . Áhættumat þetta var unnið í desember 2021, samhliða slökkviáætlun á stærri mannvirki og samfélagslega mikilvægar byggingar. Helstu niðurstöður áhættumatsins og greiningar varðandi líf og heilsu einstaklinga, umhverfis, eigna, samfélags og rekstur fyrirtækja eru tilgreind í áætluninni.
Lagt fram til kynningar og vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
5.
Eldvarnastefna Sveitarfélags Hornafjarðar
Málsnúmer 202009010
Samkomulag Eldvarnabandalagsins og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um auknar eldvarnir og innleiðingu eldvarnaeftirlits var undirritað á Höfn 3. júní 2020 og er það viðauki við greinargerðina. Samkomulagið nær til allra vinnustaða sveitarfélagsins. Í samræmi við samkomulagið setti sveitarfélagið sér eldvarnastefnu að fyrirmynd Eldvarnabandalagsins og er hún jafnframt viðauki við greinargerðina.Lagt er til að haldið verði áfram samstarfi við Eldvarnarbandalagið.
Bæjarráð lýsir ánægju með samkomulagið og þann árangur sem starfið hefur skilað.
6.
Laun kjörinna fulltrúa og nefndarmanna
Málsnúmer 202110027
Styrkur til bæjarfulltrúa vegna kaupa á vinnutækjum hefur ekki verið uppfærður síðan árið 2017.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram tillögur að tækjastyrk til bæjarfulltrúa - styrk sem tekur mið af því sem fyrir finnst hjá öðrum sveitarfélaögum.
7.
Ósk um viðhald á búnaði í Sporthöllinni
Málsnúmer 202301042
Erindi frá S.S. sport ehf. um viðhald á líkamsræktarbúnaði sveitarfélagsins í líkamsræktarstöð sem sveitarfélagið leigir út til S.S. sport ehf.
Bæjarráð felur starfsmönnum að meta endunýjunarþörf á tækjum sveitarfélagsins í samráði við leigutaka.
8.
Beiðni - Styrkur til stækkunar starfsemi Fenris ehf.
Málsnúmer 202301046
Fenrir ehf. fer þess formlega á leit við Sveitarfélagið Hornafjörð aðSveitarfélagið styrki fyrirtækið að upphæð 3.600.000 kr. næstu 18 mánuði til að standa straum að hærri húsaleigu og til að kaupa búnað.
Sveitarfélagið Hornafjörður er sem stendur með samning um rekstur líkamsræktar að Álaugavegi 7. Í Samningnum er einnig kveðið á um kaup á heilsueflandi þjónustu fyrir eldri borgara. Reksturinn var auglýstur til umsókna síðasta sumar og öllum var frjálst að bjóða í hann. Gengið var til samninga við S.S. Sport ehf. en aðeins einn aðili leitaði samstarfs við sveitarfélagið.
Samtal við Fenrir ehf. um að samnýta húsnæðið við Álaugarveg með núverandi starfsemi hefur farið fram, en Fenrir telur húsnæðið þar ekki henta fyrir sína starfsemi.
Bæjarráð fagnar þeim góða árangri sem Fenrir ehf. hefur náð en áður en ákvörðun er tekin um næstu skref, ætlar sveitarfélagið að skoða sína stöðu hvað varðar sérstakan rekstrarstuðning við einkafyrirtæki sem eiga í samkeppni og felur bæjarstjóra að leita lögfræðiálits.
9.
Mannréttindastefna
Málsnúmer 202301007
Drög að erindisbréfi fyrir starfshóp um mannréttindastefnu lagt fram til umfjöllunar.
Bæjarráð samþykkir erindisbréfið með áorðnum breytingum.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa - Þorrablót í Suðursveit 2023
Málsnúmer 202301016
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna tækifærisleyfis fyrir tímabundið áfengisleyfi fyrir Þorrablót suðursveita-og mýramanna.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.