Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1070. fundur
2. febrúar 2023 kl. 10:00 - 12:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 20
Málsnúmer 2301009F
Fundargerð samþykkt.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 48
Málsnúmer 2301018F
Fundargerð samþykkt.
3.
Húsnæðisáætlun - Hornafjörður 2023
Málsnúmer 202212093
Húsnæðisáæltun fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð lögð fram þar kemur fram að atvinnuástand í sveitarfélaginu hefur verð mjög gott fyrir utan þann tíma sem covid 19 gekk yfir. Skortur er á húsnæði og lóðarframboð ekki fullnægjandi.
Unnið er að skipulagi fyrir nýja íbúabyggð.
Bæjarráð vísar húsnæðisáætluninni til afgreiðslu bæjarstjórnar með áorðum breytingum.
4.
Upplýsingamiðstöð - Gamlabúð
Málsnúmer 202301099
Erindi frá Ríki Vatnajökuls þar sem félagið telur sig sjá tækifæri í að sinna þjónustu og rekstri á upplýsingamiðstöð í Gömlubúð í samstarfi við Sveitarfélagið Hornafjörð.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
5.
Beiðni um stuðning við bíóklúbb
Málsnúmer 202212019
Erindi frá Emil Moravek Jóhannssyni fyrir hönd áhugahóps um kvikmyndir og kvikmyndasýningar sem eru að stofna félag um nýjan Bíóklúbb. Bíóklúbburinn óskar eftir samþykki sveitarfélagsins til að gera Bíóloftið að veruleika í sýningarsalnum í Sindrabæ. Þá óskar Bíóklúbburinn einnig eftir fjárhagslegum stuðningi við útlagðan kostnað við tækjakaup á meðan önnur fjármögnun fer fram.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og vísar málinu til áframhaldandi vinnu bæjarstjóra.
Viðhengi
Bíóloftið
6.
Ósk um að selja nafnið á Sindravöllum
Málsnúmer 202301098
Erindi frá Knattspyrnudeild Sindra þar sem óskað er eftir að selja nafnið á Sindravelli í samræmi við að íþróttahúsið hefur hlotið nafnið Icelagoon höllin.
Bæjarráð gefur knattspyrnudeild Sindra heimild til þessa að fjárafla með því að breyta nafninu á Sindravelli.
7.
Hverfisráð - Íbúaráð
Málsnúmer 202211120
Drög að erindisbréfi fyrir íbúaráð lagt fram.
Bæjarráð felur starfsmanni að auglýsa eftir áhugasömu fólki til þess að taka þátt í tilraunaverkefni um íbúaráð í dreifbýli sveitarfélagsins til eins árs samkvæmt drögum að erindisbréfi.
8.
Ráðstöfun íbúðahúsalóða í landi Hofs í Öræfum, krafa landeigenda, Borgartún
Málsnúmer 202301100
Erindi frá Evu Halldórsdóttur lögmanns Guðjóns Bergssonar og Þorláks Arnars Bergssonar varðandi úthlutun lóða í Borgartúni í Öræfum.
Starfsmönnum falið að svara erindinu.
9.
Samskiptareglur kjörinna fulltrúa og starfsmanna
Málsnúmer 202209049
Bæjarráð vísaði málinu til næsta fundar með áorðnum breytingum.
Bæjarráð samþykkir samskiptareglur kjörinna fulltrúa og starfsmanna og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10.
Ákvörðun um endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030
Málsnúmer 202209045
Bæjarráð samþykkti að stofnaður verði stýrihópur um vinnu við nýtt aðalskipulag í hópnum verði einn frá hverju framboði, sviðstjóri umhverfis- og skipulagssviðs og bæjarstjóri.
Bæjarráð samþykkir að fulltrúar í stýrihópi um vinnu við nýtt aðalskipulag verði Elías Tjörvi Halldórsson, Hjördís Edda Olgeirsdóttir og Ásgerður K. Gylfadóttir.
11.
Undanþágulisti - verkfallsheimild
Málsnúmer 202201030
Samkvæmt lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og lögum um skrá yfir störf hjá sveitarfélögum sem heimild til verkfalls nær ekki til
nr. 129/2020 er lagður fram listi yfir þá starfsmenn sveitarfélagsins sem ekki hafa verkfallsheimild.
Bæjarráð samþykkir framlagðan lista og vísar málinu í lögformlegt ferli.

12.
Fundargerð 171 - Heilbrigðisnefnd Austurlands
Málsnúmer 202301104
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
13.
Fundargerð 917 - Samband Íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202301080
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
14.
Fundargerðir stjórnar SASS
Málsnúmer 202301088
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
15.
Barnaverndarlög, samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu.
Málsnúmer 202201012
Samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu.Samningur um sameiginlega barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Hornafjarðar á Austurlandi lagður fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samninginn og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar með áorðnum breytingum og til kynningar í velferðarnefnd.