Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1071. fundur
9. febrúar 2023 kl. 10:00 - 11:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir varamaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 51
Málsnúmer 2302003F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2022 - 2034
Málsnúmer 202111003
Bæjarráð samþykkir að draga sveitarfélagið út úr samstarfi við Skaftárhrepp og Mýrdalshrepp við gerð svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs þar sem vinnan hefur dregist. Sveitarfélagið Hornafjörður er komið langt á veg við vinnu við málaflokkinn og stefnir að ljúka svæðisáætlun á vordögum. Þessi breyting felur í sér kostnaðarauka upp á 600 þúsund kr.
Starfsmönnum falið að skoða hvort sú upphæð rúmist innan málaflokksins.

3.
Skrifstofuhúsnæði Litlubrú - störf án staðsetningar
Málsnúmer 202011007
Bæjarráð samþykkir að hækka leigu á skrifstofuhúsnæði í Litlubrú og felur starfsmönnum að útbúa gjaldskrá.
4.
Lóðamál - Hótel Jökull, leigusamningur
Málsnúmer 202302003
Tveir lóðarleigusamningar eru í gildi fyrir lóðina sem Hótel Jökull stendur á því þarf að aflýsa eldri samningnum.
Bæjarráð samþykkir að fela starfsmönnum að senda sýslumanni erindi þar sem óskað verður eftir að eldri lóðarleigusamningi 429-H-000111/2008 sem skráður er á lóðina Hótel Jökull, fasteignarnúmer F2180400, landeignarnúmer L216101 verði nú þegar aflýst af lóðinni.
5.
Umsókn um lóð - Borgartún 3 og 5
Málsnúmer 202108114
Arcanum Fjallaleiðsögumen óska eftir framlengingu á fresti á framkvæmdum á lóðinni Borgartún 5 og óska eftir til að hefja framkvæmdir.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 1. ágúst 2023 til að hefja framkvæmdir.
6.
Umsókn um lóð - Hafnarbraut 6
Málsnúmer 202109071
Gunnar Ásgerisson óskar eftir framlengingu á fresti sem var veittur til 1. febrúar á framkvæmdum þar sem hönnun og teikningar eru enn í vinnslu.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 1. ágúst 2023 til að hefja framkvæmdir.
7.
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202302005
Boð á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 31. mars nk.
8.
Fundargerð 918 - Samband íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202302013
Fundargerðin lögð fram til kynningar.