Bæjarráð Hornafjarðar
1072. fundur
16. febrúar 2023
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 21
Lagt fram til kynningar.
2.
Laun kjörinna fulltrúa og nefndarmanna
Endurskoðuð samþykkt um kjör kjörinna fulltrúa sveitarfélagsins lögð fram.
Samþykkt um laun kjörinna fulltrúa og nefndarmanna hefur verið uppfærð og er samþykkt af bæjarráði og vísað til bæjarstjórnar.
3.
Ágangur búfjár
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi fór yfir minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um álit umboðsmanns Alþingis og úrskurð Dómsmálaráðuneytisins um ágang búfjár.
Bæjarráð þakkar atvinnu og ferðamálafulltrúa góða yfirferð.
4.
Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2023
Lagt fram til kynningar.
5.
Aðstoð við villta fugla
Bæjarráð hvetur alla til að huga vel að fuglum í sínu nærumhverfi yfir kaldasta tíma ársins.
6.
Framboð í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
7.
Beiðni - Endurskoðun álagningar gatnagerðagjalda
Lóðarhafar við Álaleiru 15 óska eftir endurskoðun gatnagerðargjalda.
Bæjarráð getur ekki orðið við ósk um endurskoðun til niðurfellingar gatnagerðargjalda þar sem niðurfelling þeirra á umræddu byggingarsvæði var tímabundinn hvati og aðgerð sem fallin var úr gildi þegar umsækjandi fékk úthlutaðri lóð.
8.
Ferðamennskusamfélagið
Sveitarfélagið Hornafjörður ásamt Rannsóknarsetri Háskóla Íslands í Hornafirði, Nýheimum Þekkingarsetri og Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu, hlutu styrk úr sóknaráætlun Suðurlands fyrir áhersluverkefnið "Ferðamennskusamfélagið - fyrstu skref". Ragnhildur Jónsdóttir verkefnastjóri kynnir samantekt um þá vinnu sem hefur átt sér stað fyrir bæjarráði og næstu skref í verkefninu.
Gríðarleg fjölgun ferðafólks hefur verið í sveitarfélaginu á síðustu árum og mun fjölga áfram á næstu árum. Skýrsla og gagnasöfnun í verkefninu mun nýtast sveitarfélaginu vel í framhaldinu ekki síst þegar kemur að vinnu við nýtt aðalskipulag sem og innleiðingu okkar á nýrri heildarstefnu sveitarfélagins Hornafjörður náttúrulega! Bæjarráð þakkar Ragnhildi kærlega fyrir góða og upplýsandi kynningu.
9.
Umsókn um byggingarheimild - Hafnarbraut 52, salernisaðstaða og baðaðstaða
Fyrirhugaðar framkvæmdir á salernishúsi við tjaldsvæðið eru lagðar fram til kynningar skv. samningi.
Lagt fram til kynningar - bæjarráð gerir ekki athugasemdir.
10.
Beiðni um stuðning við bíóklúbb
Samtal á milli sveitarfélagsins og þeirra sem hafa áhuga á að hefja bíósýningar heldur áfram og er bæjarráð jákvætt fyrir verkefninu.